Hlín - 01.01.1953, Síða 70
68
Hlin
stofnun, sem getur veitt Jóni eða Siggu rökstudd ráð, okk-
ur skortir alt á þessu sviði: Hæfð próf til að prófa ungling-
ana og upplýsingaskrifstofu, sem fylgist með þróun at-
vinnulífsins, og veit hvar mestar líkur eru til að miklir
atvinnumöguleikar verði í framtíðinni. — Hvað eftir ann-
að verða vel gefin ungmenni ekki aðeins sjálfum sjer til
ama af því að þau velja ranga brant, heldur kosta þau
einnig ríkið þúsundir og aftur þúsundir, sem eytt er í
námsstyrki handa fólki, sem tuskast við nám, sem það
ræður ekki við, eða hefur engan áhuga á. — Ef mentamála-
ráð athugaði vandlega, iiversu margir hverfa próflausir
frá námi því, sem þeir hafa verið styrktir til, og aflaði sjer
síðan vitneskju um orsakarnir til fráhvarfsins, myndu
bæði yfirvöld og almenningur komast að raun um, að
miklum verðmætum liefur verið kastað á glæ. — En þótt
hörmulega sje, að fje hins opinbera skuli vera sóað til þess
að styrkja svokallaða „eilífðarstúdenta", þá er hitt þó
miklu verra og alvarlegra, að þessir menn verða oft liálf-
gerð reköld, óánægðir með sjálfa sig og aðra, hertir í
lund, en með hjartasár. — Oft gutla þeir svo lengi við
verkefni, sem þeir geta ekki leyst, að of seint er orðið að
þræða nýjar brautir, þegar horfið er frá ófærunni.
En þótt hópur eilífðarstúdentanna sje stór, er sá hóp-
urinn þó miklu stærri, sem ekki kemst svo langt á menta-
brautinni, að þeir Ijiiki stúdentsprófi, en lenda samt af
ýmsum ástæðum á alt annari braut en þeim myndi henta.
— Bláfátæki bóndasonurinn eða sjómaðurinn sveifla kan-
ski orfi og beita línu alla æfi, þótt greind þeirra og skap-
gerð liefði átt að geta trygt þeim háskólakennarastöðu. —
Á sama tíma er sonur heppna og nýfína gróðamannsins
píndur í skóla eftir skóla, hann fellur hjer, og þá er hon-
um komið þangað, þar á liann heldur engrar uppreisnar
von, og er þá þriðja höfnin reynd með svipuðum árangri.
— Slíkur piltur hefði ef til vill átt vel heima við heyskap-
inn eða þorskveiðarnar, en Iiann er svo óheppinn að eiga
„of fína“ foreldra.