Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 133
Hlin
131
Steypumót.
Búnaðarsamband A.-Húnavatnssýslu hefur fyrir nokkrum
árum keypt steypumót, sem það lánar bændum til afnota, sem
eru að byggja íbúðarhús eða útihús. — Steypumót þessi eru
keypt frá Ameríku og munu hafa kostað um 70 þúsund kr. —
lil
Mótum þessum fylgja járn, sem ganga í gegnum vegginn, ásamt
„splittum“ og klemmum, sem notuð eru til að halda mótun-
um í skorðum, svo og „battingar“ til að rjetta mótin, áður en
steypt er í þau. — Hæðin á mótunum er venjuleg stofuhæð: 2,44
m. og breiddin 61V2 sm. — Svo eru mjórri mót, um 25—30 sm.,
er nota þarf, eftir því sem á stendur með stærð húsa hið ytra og
milli veggja að innan. — Mótin eru úr þykkum, olíusoðnum
krossviði, með stálramma á öllum köntum og mörgum þver-
böndum. — Steypan úr mótum þessum er mjög áferðarfalleg,
svo vel sljett sem pússaðir veggir, ekki sambærilegir við veggi,
þar sem notaður er óheflaður borðviður til uppsláttar. —
Steypumót þessi eru smurð með oh'u í hvert sinn, er þau eru
notuð, tollir því engin, eða mjög lítil, steypa við þau, svo það
tekur fremur lítinn tíma að hreinsa þau í hvert sinn er þau
hafa verið notuð. — Vinnusparnaður er mikill, eins og gefur að
skilja, við notkun slíkra steypumóta. — Það tekur fremur
stuttan tíma að setja þau upp, auk þess sparast mikil viðarkaup
og rýrnun á viði, ef hann er notaður til uppsláttar við byggingu
9*