Morgunn - 01.06.1934, Blaðsíða 7
Hverju skiftir trúin á ódauðleika?
Erinði fluit í 5. R. F. í.
Eftir Ragnar E. Kuaran.
Eins og öllum félagsmönnum er kunnugt, hefir
stjórn þessa félags frá öndverðu gætt þess, að halda sér
fast að því í starfsemi sinni, sem er talið aðalverkefni
félagsins í lögum þess: að kynna mönnum þær niður-
stöður, sem leiddar verða af sálarrannsóknum víðsvegar
um lönd. Ein af hinum fáu undantekningum verður þetta
mál, sem hér verður flutt í kvöld. Eg ætla ekki að skýra
frá neinum rannsóknum né fyrirbærum, né yfirleitt um
þetta að tala.
Samt sem áður vona eg, að ekki verði sagt, að mál
mitt sé óviðkomandi áhugamálum félagsins. Eg ætla að
ræða um, eins og tilkynt hefir verið, hverju máli skipti
trú manna og sannfæring fyrir framhaldslífi mannanna.
Eg veit, að áhugi félagsmanna fyrir sálarrannsóknum
stafar af því, að þeim virðist þessi trú skipta máli, en
samt sem áður verður ekki sagt, að það sé með öllu
ástæðulaust, að reynt sé að rekja þetta einstöku sinn-
um fyrir sér. *)
*) Eg vil geta þess, að þegar þetta mál var sett saman, þá
studdist eg mjög mikið við rit ýmsra manna, sem fast og ítarlega
hafa um þessi efni hugsað, og hefi eg víða tekið upp hugsanaferil
þeirra og dæmi frá þeim, án þess að geta þess sérstaklega, hvaðan
fengið væri. Vænti eg því þess, að lesendur líti eklci fyrst og fremst
á þetta erindi sem mina eigin smíði, heldur frekar sem greinargerð
fyrir hugsunum ýmsra vitmanna, sem mest þykir vert um ódauð-
leikatrúna.
1