Morgunn


Morgunn - 01.06.1934, Page 16

Morgunn - 01.06.1934, Page 16
10 M ORGUNN fyrir þann guð, sem þú trúir á. Farðu þá og gerðu það, sem þér sýnist! Því sé það ekki til, þá er enginn guð til, enginn djöfull og ekkert helvíti. Alt er úti, þegar þú deyr, eins og þegar tré er felt til jarðar. Þá getur þú kastað þér út í ólifnað, fantaskap, rán og morð“. Þetta nær í skemstu máli ekki nokkurri átt, og það er Lúther ekki til sóma að telja það sjálfsagt, að allir verði og eigi að verða að ómennum, ef þeir fengju aðrar skoðanir um þessi efni. Því að það vill svo til, að skoðanir vorar eru ekki eini þátturinn, sem ákveður, hvaða tegund af lífi vér lifum. Og prestar, og aðrir kirkjunnar menn, hafa hlaupið stórlega á sig, er þeir hafa verið með fullyrð- ingar um það, hversu ægilegar og skyndilegar breyting- arnar yrðu til þess verra, ef ódauðleikatrúin þurkaðist út. Þeir hafa haldið því fram, sem gert var endur fyrir löngu með orðunum: ,,Ef dauðir rísa eigi upp, etum þá og drekkum, því á morgun deyjum vér“. Jafn mikils virði og ódauðleikatrúin að sjálfsögðu er, þá er þó enginn ávinningur við það að telja sér trú um, að hún sé eina undirstaða siðferðis einstaklinga og kynslóða. Þar fyrir ættu menn að geta orðið sammála um, að það h e f ð i breytingar í för með sér, eins í þess- um efnum og hinum, sem hér hefir verið rætt um að framan, ef menn hættu að trúa alment á framhald lífs- ins. En í hverju yrðu þær breytingar fólgnar? Hinn mikli bölsýnismaður, heimspekingurinn Scho- penhauer, hefir dregið upp í afar dökkum dráttum mynd- ina af þeim heimi, sem honum fanst hann sjá, myndina af heimi, sem ekkert vit væri í, engin meining í. Menn hafa alið með sér þrjár tegundir af vonum, segir hann, og allar hafa brugðist. Fyrst, að þeir gætu fundið gæf- una í ytri lífsþægindum; annað, að þeir mættu dvelja í sælu á himnum uppi; og þriðja, að þeir gætu látið börn sín erfa það þjóðskipulag, þar sem veruleg fullnægja félli mönnum í skaut. Alt þetta hefir brugðist, og lang réttast er fyrir mennina að gefa lífið upp.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.