Morgunn - 01.06.1934, Qupperneq 62
56
M0R6UNN
Sannanir hjá miðlum í Reykjavík
Erinöi eftir Einar Laftsson.
II.
Síðastliðinn vetur flutti cg erindi í Sálarrannsókna-
félagi íslands, er eg nefndi „Sannanir hjá miðlum í
Reykjavík“. Erindi þetta var birt í síðasta árg. Morg-
uns, og eins og lesendum tímaritsins er kunnugt, fjallaði.
það eingöngu um tilraunir nokkurra undanfarinna vina
minna til að sanna mér og öðrum vinum sínum og vanda-
mönnum persónulegt framhaldslíf sitt hinumegin graf-
ar, eftir líkamsdauðann. Síðan eg flutti umgetið erindi
mitt hafa fleiri þeirra bæzt í hópinn. Þeir hafa allir lagt
aðaláherzluna á það, að draga fram þau atriði úr liðnu
jarðlífi sínu, sem ákveðnast gætu bent á það, að það
væru þeir og engir aðrir, sem bak við þessar sannana-
tilraunir stæðu, og þá vissu hefir þeim hlotnast að færa
eftirlifandi vinum sínum. Hún hefir borið ósegjanlegan
fögnuð og feginvissu inn í líf eftirlifandi ástvina þeirra,
og sjálfum þeim virðist árangurinn af því starfi engu
síður hafa orðið ótæmandi fagnaðarefni. En þó að slík-
ar sannanir séu fyrst og fremst ætlaðar hlutaðeigandi
vinum þeirra, þá eiga þær áreiðanlega erindi til fieiri.
þær eru einn liðurinn í því mikla og mikilvæga starfi,
sem íbúar eilífðarheimsins óaflátanlega vinna að, því
starfi, að veita sólgeislum eilífðarvissunnar og guðstrú-
arinnar inn í jarðlífið, bera Ijós og feginvissu inn í hugi
þeirra, sem bera harm í huga, reika um óvissulönd efnis,
og þrá ljósið af hæðum blítt og bjart inn í líf sitt. Þeim
eru þær jafnframt ætlaðar, og eg veit, að mörgum slík-
um hafa þær borið fyrstu geisla aftureldingarinnar,
fyrstu vorgeisla nýrra vona og nýs fagnaðar eftir langa