Morgunn - 01.06.1934, Síða 93
MORGUNN
87
Vér lifum eftir dauðann.
Útuarpsrœöa eftir Sir. Oliuer Loðge.
C’ýðingin eftir Ragnar E. Kuaran.
Aðalmarkmiðið með þennan flokk af ræðum hefir
verið, að leggja áherzlu á mikilvægi sálarrannsóJ.nanna
og að staðhæfa að ákveðnar staðreyndir kæmu fram, sem
ekki yrði komið heim við neina vísindalega skýringu, og
fyrir þá sök væri hætt við, að nútíma vísindamenn gengju
fram hjá þeim eða neituðu þeim, ekki sízt sökum þess,
að vitanlegt er, að skilyrðin fyrir því, að þau lcomi fram,
eru því nær óþekt.
En einmitt fyrir þessar sakir liefir enginn vísinda-
niaður heimild til þess að neita þeim eða láta þá sæta
illu, er sjálfir kjósa sér það hlutskipti að rannsaka þetta.
Vísindin geta ekki fengið skynsamlegt yfirlit yfir
tilveruna, ef þau ganga fram hjá því, sem raunverulega
ber við ; og ekki er unt að treysta leiðsögu þeirra vísinda,
sem fyrirskipa að útiloka heila röð af staðreyndum, né
heldur verður þeim beittgegn neinni andlegri lífsskoðun.
Vísindi, sem vildu ná vítt yfir, mundu kynna sér
þessar dulrænu staðreyndir, mundu leitast við að skilja
þær og mundu taka alt til íhugunar, sem við kemur gátu
tilverunnar.
Markmið erindanna liefir hingað til verið að leggja
óherzlu á þetta. Meðal annars gerði Charles Hope lá-
varður nákvæma grein fyrir einu tiltölulega smávægi-
iegu fyrirbrigði, sem hann telur verða staðfest og trygt
tfieð verkfærum. Hr. Gerald Heard gat um heila röð af
'tyrirbrigðum, sem fullyrt er að gerist, en neitað er af
rétt-trúuðum vísindum. Og Sir Ernest Bennett sagði yð-