Morgunn


Morgunn - 01.06.1934, Page 101

Morgunn - 01.06.1934, Page 101
M ORGUNN 95 við, að maður kemur austan með Hraunsnefi, sem kall- að er, og er um hundrað faðma austan við bæinn, og teymir svarta kind. Kom okkur til hugar, að Þorkell hafi farið út á Tjörnes og fengið sér svarta kind í skarð- ið fyrir forustusauðinn. Sjáum við þrír bræðurnir, að svarta kindin gengur ýmist á eftir honum eða á hlið við hann, og þykir okkur maður þessi gefa kindinni nokkuð langan og lausan taum. Er nær bænum dregur, þekkjum við að þetta er Þorkell á Sandi. Fer hann svo á brú yfir læk þann, sem sker túnið á Sílalæk af að austan, og fylg- ir þá kindin honum. Sjáum við, að Þorkell stefnir af brúnni norðan við bæinn og beina stefnu á Sand. För- um við svo inn í baðstofu og lítum út um vesturglugga baðstofunnar til ferða Þorkels. Sjáum við þá, að kindin er horfin frá honum. Virtist okkur þetta óskiljanlegt, og förum út og tökum slóð Þorkels austan við brúna, því að snjór var mjúkur. og nýfallinn. Sjáum við þá, að engin kindaslóð fylgdi slóð Þorkels. Ærnar. Eg mun hafa verið um 16 ára gamall, þegar það bar við einhvern tíma á einmánuði, seinni part nætur í tunglsljósi, að guðað er á glugga á Sílalæk. Þekkjum við strax, að það er Flateyingur, sem vill finna einhvern út. Faðir minn fer til dyranna og gesturinn segir erind- ið, að Flateyingar séu komnir til að sækja eldivið á rek- ann, sem áður var lofaður. Fór faðir minn með honum út á Sand til að afhenda viðinn. Vorum við bræðurnir ahir vaknaðir. Kom okkur saman um að fara á fætur og hleypa út fénu, því að komið var undir dag. Göngum við vestan við bæinn og fyrst að húsi austan við lækinn (sem nefnt var Lækjarhús). Þegar við tökum hespuna af kengnum og ýtum á hurðina, er hún alveg óþokanleg. Þóttumst við vita, að kind lægi fyrir hurðinni, helzt úauð, þar sem hún þokaðist eigi. Fengum við okkur sPitu og spentum hurðina upp af hjörunum. Að því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.