Morgunn - 01.06.1934, Síða 109
M 0 R G U N N
103
hún þetta heim: „Kvöldið, sem veðrið batnaði, þorð-
um við farþegarnir ekki að hátta, enda k'om skipið, og
eg var komin um borð klukkan þrjú um nóttina".
2. draumur.
Haustið, sem ,,Lína“, skip Höpfnersverzlunarinnar
á Blönduósi — vanalega kallað Sæmundsens skipið —
strandaði, gisti eg nótt í Steinnesi hjá Bjarna bróður
mínum og konu hans Ingibjörgu. Um nóttina skall á
af norðri ofsaveður. Þessa nótt dreymir mig m a n n i n n.
Mér þykir hann koma að rúminu mínu og segja: ,,Sæ-
uiundsensskipið er rétt að stranda“. — Eg vaknaði og
kveikti á lampa til að sjá á klukkuna. Þá var hún fimm.
Svo skrifaði eg hvað hún var og sagði drauminn undir
eins og fólkið var komið á fætur. En þegar við vorum
sezt að borðinu, að borða morgunverð, kemur ferðamað-
ur utan af Blönduósi og segir þessar fréttir: „Sæmund-
sensskipið strandaði í morgun klukkan fimm.
3. draumur.
Móðir mín og eg vorum að hugsa um veika konu í
grendinni. Fyrstu veikindin voru í rénun, en nú hafði
hún óþolandi uppköst, engin næring hélzt niðri í henni.
Eg hafði vakað yfir henni liðna nótt, en fór svo heim
til að vinna eitthvað, sem á lá, og sofa, því að eg ætlaði
að vaka næstu nótt; móðir mín var hjá henni á meðan.
Konan var mikið veik. Þó noþkuð annríki var heima hjá
mér um daginn, og var eg hætt við að sofa, hélt, að eg
líæti ekki sofnað, en þá sagði faðir minn: ,,Þú mátt til“,
°g eg hlýddi honum og lagðist til svefns og sofnaði undir
eins. — Mig dreymir, að m a ð u r i n n kemur að rúm-
Jnu og er alvarlegur á svipinn, og segir: „Þið gleymið að
reyna kaplamjólkina". En kaplamjólk hafði móður minni
neynst svo vel við sjúklinga, sem fengu mikil uppköst.
Nú var komið fram yfir nýár og búið að taka folöld
nndan hryssum föður míns, nema einni, fimm vetra gam-