Morgunn - 01.06.1934, Page 111
MORGUNN
105
Maðurinn, sem eg hefi ekki heyrt hvað hét, segir svo frá:
,,Þegar Benidikt var sofnaður, kemur síra Jónas á Iiösk-
uldsstöðum hér inn, stiklar á milli rokkanna, sem þið
spinnið á, og ekkert bil er á milli að heitið geti; hann
rasaði dálítið til, og þá hló eg. Svo gengur hann inn að
rúmi sonar síns, lýtur ofan að eyra hans, og þá fór Beni-
dikt að hreyfa sig meira og láta meira í svefninum“.
Þegar Benedikt vaknaði, fór kona hans til hans, og
spurði, hvað hann hefði dreymt. Benidikt segir svo frá:
,,Mig dreymdi föður minn. Mér þótti hann koma inn að
rúminu og hvísla í eyra mér þessi orð: „Eg ætla að biðja
þig fyrir hana Sigurlaugu systur þína“. Þessi orð sagði
hann með mikilli áherzlu, og fór svo fram gólfið. (At-
hugað var, hvað klukkan mundi vera). Þau munu hafa
verið- tvö systkinin; Sigurlaug var gift bónda, en þau
hjónin voru fátæk.
Morguninn eftir var bærilegt veður. Síðara hluta
þess dags kom sendimaður frá Höskuldsstöðum með
fregnina, að prófastur hafði andast í gærkvöldi; taldist
svo til, að hann hefði látist á sama tíma og Benidikt
dreymdi drauminn.
Benidikt þóttist nú skilja orð föður síns svo, að
hann vildi, að Sigurlaug systir sín erfði jafnt sér, og lét
því skipta fjármunum hans jafnt á milli þeirra.