Morgunn - 01.06.1934, Qupperneq 113
MORGUNN
107
má með enn meiri rétti segja þetta um nútímann. Því
þótt Grikkir væru forvitnir eftir fregnum um andleg
efni, þá hygg eg, að ekki megi segja síður um mikinn
fjölda grieindra alþýðumanna nútímans, að þejr séu
þ y r s t i r eftir slíkum fregnum.
Ef til vill ber ekkert eins glögg merki þessa, eins
°g þegar skáldsögur — svo vel ritaðar, að þær nái at-
hygli greindra manna — fjalla um þessi efni. Og þarf
raunar ekki til, að þær séu vel ritaðar. Þorsti manna eft-
ir andlegum verðmætum er svo mikill, að menn svala
sér frekar á gutlinu en að vera ósvalað með öllu. En svo
ber það einnig stundum við, að bækur koma út, sem
segja nýstárlega hluti um andleg efni í skáldsöguformi
og segja þá svo vel, að því nær er samboðið efninu. Á
ótrúlega stuttum tíma er sem bækur þessar hafi svo að
segja sjálfkrafa aflað sér lesenda, það þarf ekki að
auglýsa þær, því að þær bera hvarvetna á góma í við-
ræðum manna. Hver spyr annan, hvort hann þekki bók-
ina og hver sé dómur hans á henni. Bókin hefir snert við
einhverjum streng, sem heldur áfram að titra löngu eftir
að lestrinum er lokið.
Mér er minnisstætt eitt slíkt bókarnafn, sem á fá-
um dögum varð á hvers manns vörum þar í landi, er eg
dvaldi síðastliðið ár. Eg hafði aldrei áður heyrt höfund-
arins getið, og mér þykir sennilegt, að hann sé ekki
mikið þektur af öðrum verkum en þessu eina. Bókin
heitir Magnificent Obsession. Eg ætla ekki
að reyna að þýða nafnið. Aðeins ætla eg að minna á,
að hugsunin í enska orðinu ,,Obsession“ er ekki óskyld
orðinu ,,ásókn“ á íslenzku — t. d. ásókn illra anda, er
í þjóðsögum vorum náðu tangarhaldi á mönnum. En eins
ogMagnificent Obsession bendir til, þá ræð-
ir bókin um annarskonar ásókn — sérstök hugsun, göf-
Ug í eðli sínu og máttarmikil, nær haldi á mönnum í
sögunni, hleður sálarlíf þeirra og magnar svo, að engu
or líkara, en að nýr andi hafi tekið sér bólfestu í þeim.
\
«