Morgunn - 01.06.1934, Qupperneq 130
124
M OR GUNN
flestir yngri prestar landsins aðhyllast þessa stefnu og
meginþorri alþýðu. Og sé vel að gáð, er það ekki undar-
legt, þótt svo hafi farið. Því þetta tvent mun einkenna
mjög hvern norrænan mann: í fyrsta lagi gerir hann
kröfu til að vera einstaklingur, sem vill skoða og rann-
saka það, sem fyrir augun ber, með eigin augum. í öðru
lagi getur hann verið nær barnslega næmur fyrir því dul-
arfulla og yfirnáttúrlega í umhverfi og lífi. I sál hans
mætist þetta tvent: skáldið og gagnrýnarinn. Menning
hans er ofin þjóðsögum og saga hans eilíf endurtekning
þess sama: maður stendur gegn manni. Hann heyrir
stofni til, sem hefur lagtmannkyninu til ýmsa beztu nátt-
úrufræðinga og uppfyndingamenn, og þá er ekki að
undra, þótt hann taki að beita sinni rótgrónu rýnihneigð
einnig á svið trúarinnar. Hér höfðu hjörtu almennings
áreiðanlega þráð um mörg ár að heyra boðskap um hin
hinztu rök, þar sem jafnljóst var frá skýrt og góð skil
gerð alls frá sjónarmiði skynseminnar.
„Spíritisminn hefur hjálpað mönnum til þess að
hugsa skýrar um dularfylsta viðfangsefni mannsandans,
lífið eftir dauðann, sannfært fjölmarga um tilveru per-
sónulegs lífs að þessu loknu, fyrir eigin rannsóknir, og
enn aðra fyrir lestur um þær. Hann hefur brotið í rústir
vígi efnishyggjunnar fyrir flestum hugsandi mönnum,
og vakið menn til hugsunar um, hversu óumræðilega fag-
ur og sannur sá boðskapur sé, sem Kristur flutti mann-
kyninu. Kirkjunni hefur verið ómetanlegur fengur í sál-
^ rænum rannsóknum, því allar helztu niðurstöður þeirra
hafa sýnt, að grundvallaratriði kristinnar trúar, kenn-
ingin um andlegan heim, er veruleiki“.
í hinni miklu og ágætu bók Dr. Guðm.
Huliðs- f , , .
heimar. Fmnbogasonar um 1 s i e n d 1 n g a er
einn kafli, sem höf. nefnir H u 1 i ð s-
h e i m a r. Hann er, eins og annað í þessari bók, ritaður
af þeim samúðarfulla skilningi, sem höf. hefir öðlast í
svo ríkum mæli. Kaflinn byrjar á þessum orðum: ,,Eng-