Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 41
M O RG UNN
167
með því að spila plöturnar getum vér enn, og munum
lengi geta, látið hann syngja fyrir oss lögin, sem hann
töfraði áheyrendurna með í sönghöllum Evrópu og Aine-
ríku; franska hirðin er liðin undir lok fyrir 150 árum
og drottningin hálshöggvin á höggstokk stjórnbyltingar-
innar, en atburðirnir, sem gerðust við höll hennar í Ver-
sailles, virðast vera geymdir í myndum og hljómum í
öldum ljósvakans og geta orðið jarðneskum mönnum
sýnilegir og heyranlegir enn — já, og enginn veit hve
lengi enn. ,
I þessu örstutta erindi ætlaði ég mér engan veginn að
gefa neina tæmandi skýringu á reimleikunum, hvað
þeir væru, þá skýring getur enginn jarðneskur maður
gefið enn, svo margt er órannsakað í þeim efnum, og þó
sum fyrirbrigðin, sumar afturgöngurnar, kunni að vera
eitthvert ófullkomið og ósjálfsvitandi brot af vitund
framliðins manns, sem sjálfur er samtímis að starfa á
æðra lífssviði og enga hugmynd hefir um reimleikana,
sem þetta brot úr persónu hans er að orsaka á jörðunni,
eins og Þjóðverjinn Ulig og ýmsir aðrir halda fram —
og þótt sumar afturgöngurnar kunni að vera aðeins mynd
liðinna atburða, sem skyndilega verður sýnileg og heyr-
anleg í jarðneska heiminum, eins og Flammarion og
margir fleiri hafa haldið fram. eru engan vegin allir
reimleikar útskýrðir með því; fjölda þeirra er undir
hvoruga þessa tilgátu hægt að heimfæra og verða alls
ekki taldir orsakast af nokkru öðru en sjálfum hinum
framliðnu mönnum, þótt hin jarðnesku skilyrði sníði þeim
þröngan stakk um háttsemi og framkomu; örðugleikar
þeirra á að starfa í efnisheimi vorum eru svo miklir, að
þegar þeir eru þangað komnir, geta þeir ekki gert og
sagt nema lítið brot af því, sem þeir ætluðu að segja
þar og gera. Á bak við hið einfaldasta reimleikafyrir-
brigði, eitt raunverulega dularfullt hljóð, eða óskiljan-
legt högg, kann að felast andi, miklu víðtækari en hinn