Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 77
M O RG UNN
203
gögnum um þetta efni er sama og að neita, að taka
mannlegan vitnisburð gildan yfirleitt".
Frá frægasta og stórkostlegasta dæminu um lyftingar
Mr. Homes sagði ég í erindi mínu hér í kirkjunni í vet-
ur; það gerðist í London er Home var 35 ára, í viðurvist
þriggja mikilsmetinna manna, þeirra lávarðanna Linds-
ay og Adare og Wynnes herforingja. Home var fallinn í
trans og þá hvíslaði rödd í eyra Lindsay lávarði: .Hann
ætlar að fara út um einn glugga og inn um annan!“
Home hafði gengið í trans inn í næsta herbergi; heyrðu
fundarmennirnir þrír þá, að glugganum var lokið upp
og augnabliki síðar sáu þeir Home svífa í lausu lofti
fyrir utan gluggann, sem þeir sátu við. Hann staðnæmd-
ist í loftinu í lóðréttri stelling, lyfti síðan glugganum upp
og rann inn með fæturna á undan.
Adare gekk nú inn í næsta herbergið til þess að at-
huga gluggann, sem Home hafði svifið út um, en hann
opnaðist þannig, að neðri rúðu var rennt upp. Glugginn
var opinn en rifan var ekki meira en á að gizka 18 þuml-
ungar, svo að Adare lét í ljós undrun sína yfir að líkami
miðilsins skyldi komast í gegnum svo þröngt op. Home,
sem enn þá var í trans, svaraði: ,,Ég skal sýna ykkur“.
Hann gekk að glugganum, hallaði sér aftur á bak og
sveif út um gluggaopið með höfuðið á undan og síðan
aftur rólega inn.
Þetta gerðist á þriðju hæð í húsinu í 70 feta hæð frá
jörðu, gluggarnir voru h. u. b. 6 fet hvor frá öðrum ög
engin sylla milli þeirra, sem hægt væri að tylla fæti á.
Mr. Home var mjög máttfarinn þegar hann vaknaði
af transinum. Honum fannst hann hafa komizt í ein-
hverja ægilega hættu og sagðist hafa verið altekinn
þeirri hræðilegu ósk að fleygja sér út um glugga
Lávarðarnir báðir skrifuðu síðan frásögn sína hvor
heima hjá sér og bar frásögnunum að öllu saman um
staðreyndirnar.
Enn furðulegri má þó telja þá staðreynd, sem einnig