Morgunn - 01.12.1940, Qupperneq 52
178
MORGUNN
fengi hlýjar viðtökur á 3. hæðinni. Ég vil tilfæra orð í
blaðinu Light 29. febr. eftir merkan enskan prest, A. F.
Webling. ,,Eins og á stendur", segir hann, ,,er erfitt að
átta sig á því, að sjá prestastéttina, almennt talað, gjöra
Heródesar og Pilatusar sáttmála við efnishyggjuna um
að ganga fram hjá eða gjöra það hlægilegt, að leitast við
að fá hinar einu sannanir, sem hefja framhaldslífið yfir
allan efa með hinum sálrænu staðreyndum“.
Mér þykir að vísu leiðinlegt, að kalla trú og vísindi
Heródes og Pílatus, en þannig er það, að þetta tvennt
hefir verið aðalþröskuldurinn til að torvelda það, að geta
kallað saman vini og nágranna — alla menn, — til að
samfagna yfir hinum dásamlega sannleik, sem þegar hef-
ir þó orðið þúsundum til blessunar, en því munu spiritist-
ar halda áfram, að kalla saman. Um það segir í einu af
síðustu blöðum af Light merkur sálarrannsóknamaður og
doktor, Wilfrid Garton, (sem ég hefði gaman af ein-
hvern tíma að segja yður meira frá, þótt ekki verði nú).
Hann segir: ,,Ég hygg, að eina leiðin til að fá opinber vís-
indi til að viðurkenna sálarrannsóknirnar, sé að útbreiða
þekkiguna á hinum fullsönnuðu staðreyndum, þangað til
ekki er unnt lengur að ganga fram hjá þeim. Fyrir utan
spiritistafélögin er enn sem komið er mjög lítil þekking
á málinu, þó að spiritistar vinni ákaflega mikið og gott
verk og hafi veitt tugum og hundruðum þúsunda trúna,
sem áður höfðu alls enga trú. Ég álít, að sókn ætti að
hefja til að auka þekkingu á málinu hjá þeim, sem áhuga
hafa, en vilja ekki líta á það eins og að taka ný trúar-
brögð“.
Til marks um þessa baráttu við trú og vísindi, má
segja frá því, að af öllum þeim hundruðum og þúsundum
bóka, sem út koma, munu mjög fáar, sem ekki hafi það
að einhverju leyti fyrir viðfangsefni, beint eða óbeint, og
sama er að segja um sálarrannsóknablöðin, að þar er í
hverju einasta tölublaði eitthvað að því vikið, og í öðru
hverju blaði má sjá fyrirsagnir greina eins og: „Kirkjan