Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 68
194
M O R G U N N
,,Ég fór að hátta í mjög hryggu skapi“, — skrifar Mr.
Home — „því að þetta var í fyrsta sinn að röng orð-
sending hafði borizt mér frá ósýnilegum heimi. Og jafn-
vel þó að hún kynni að reynast rétt, furðaði mig á, að
andi framliðins manns væri að rekast í svona smámun-
um“.
Morguninn eftir sagði hann húsbódanum hve leitt
sér þætti þetta mál. „Mér þykir það alveg eins leitt“ —
sagði Mr. Cheney — „en nú skal ég sanna yður, að ef
þetta er komið frá þeim anda, sem það tjáir sig að vera
frá, skjátlast honum. Við skulum fara út í grafhvelf-
ingu ættar minnar og þar skuluð þér sjá með yðar eigin
augum, að jafnvel þótt við hefðum viljað setja aðra lík-
kistu ofan á kistu konunnar, er það ekki hægt, þar er
ekkert rúm til þess“.
Þeir gengu strax áleiðis til kirkjugarðsins, fundu
manninn, sem annaðist grafhvelfinguna og báðu hann
að opna hana. Um leið og hann gerði það sagði hann
eins og afsakandi við Mr. Cheney: „En meðal annara
orða, herra, vegna þess að dálítið rúm var ofan á kistu
frú — Cheney, og hann nefndi nafn gömlu frúarinnar —
leyfði ég mér að láta kistu með barni frú L — þar. Ég
vona, að þér afsakið þetta, en vitanlega hefði ég átt að
biðja yður um leyfi fyrst. Eg gerði þetta í gær“.
Mr. Cheney sneri sér að Home með botnlausa undrun
í svipnum og gat ekkert sagt, nema þetta: „Það er þá
allt saman satt! Allt satt!“
Sama kvöldið gerði gamla frúin enn vart við sig og
þá sagði hún: „Þið skuluð ekki halda að mér stæði ekki
hjartanlega á sama um, þótt heilum pýramída af lík-
kistum væri hlaðið ofan á mína lcistu, en ég vildi að eins
sannfæra ykkur um í eitt skifti fyrir öll, að þetta væri ég
sjálf!“
Þessi frásögn er glæsilegt dæmi dulsýni — og dul-
heyrnargáfu Mr. Homes, því að engin önnur tilgáta en
sú, að þarna hafi gamla, framliðna frúin verið sjálf að