Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 66
192
MORGUNN
bragðskonur, báðar rússneskar og af háum ættum. Hann
var með afbrigðum vinsæll, varð sálusorgari og vinur
smælingjanna og gestur margra konunga og þjóðhöfð-
ingja, og meðal vina hans voru heimsfrægir listamenn
og skáld, eins og Dumas, Tolstoj greifi og enska skáld-
konan Elisabeth Barret-Browning.
En vísindamennirnir voru honum ,margir þungir í
skauti og þó blöðin lang verst. Þau ofsóttu hann bæði
lífs og liðinn með svo svívirðilegum óhróðurssögum, að
nú á tímum væri slíkt, sem betur fer, óhugsandi. Oft
varð hann blátt áfram að fara huldu höfði og einu sinni
eða tvisvar voru gerðar tilraunir til að myrða hann.
II.
Hverjir voru miðilshæfileikar Mr. Homes?
£ stuttu máli sagt, var hann óvenjulega al-hliða mið-
ill, þó líkamlegu fyrirbrigðin væru hjá honum langsam-
lega sterkust.
Sem dæmi um skyggnigáfu hans langar mig að lesa
yður þessa frásögn, sem óneitanlega virðist vera sterk
sönnun fyrir framhaldslífinu:
Þegar hann var 19 ára að aldri og enn í Vesturheimi,
batt hann vináttu, sem entist æfilangt, við þekkta fjöl-
sk.yldu þar vestra, Cheney-fólkið. í fyrsta sinni, er hann
var gestur í húsi þessa fólks, gerðist merkilegt atvik.
Þegar hann kom inn í forstofuna heyrði
*!f,ú?1n..í1Bráa hann skrjáfa í þungum silkikjól, en hann
sdkikjolnum. , , ,, ,
sa engan. Faum minutum siðar, er hann
sat á tali við Mr. Cheney inni í einni stof-
unni, heyrði hann sjálfur þetta sama silkiskrjáf við hlið
sér, en fann enga orsök þess. Húsbóndinn sá honum
bregða og spurði, hver væri ástæða þess, en Mr. Home
svaraði, að hann hefði nýlega verið mjög veikur og því
væru taugar sínar e. t. v. óstyrkar. En naumast hafði
hann sleppt orðinu, er honum varð iitið í gegnum opnar
dyrnar fram í forstofuna og sá, að þar stóð lágvaxin,