Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 107
M O R G U N N
233
lagsins eða í þjónustu þess, að eins eftir tilboði hennar
gefið skygnilýsingar á einum félagsfundi og þóttu þær
takast vel, svo að ekki er ólíklegt, að þá hafi hæfileikar
hennar notið sín. Ef um framkvæmanlega ábyrgð væri að
ræða, gæti það að eins verið á miðlum, sem félagið hefir
tekið að sér.
í öðru lagi er ætlunarverk félagsins eingöngu jákvætt,
að auka þekkingu á málefninu og um leið áhuga fyrir
því, því að það hefir varla skeikað, að með fullkominni
þekkingu hallaðist hver maður að því. En hitt er ekki
ætlunarverkið að afhjúpa óhæfa eða grunaða miðla, sem
stundum hefir sannazt, að voru hafðir fyrir rangri sök, t.
d. ljósmyndamiðlarnir hinn frægi William Hope í Crewe
og John Myers. Sálarrannsóknamenn vörðu þá drengi-
lega, en þeir hafa síðastir manna orðið til að draga dulur
á, er einhver hefir orðið uppvís. Það heyrir til þekking-
ar á málinu, að vita, að það á þessa veiku hlið sameigin-
lega flestu öðru, að beita má blekkingum og eftirlíking-
um, sem ekki rýra neitt gildi aðalmálsins og sjálfs sann-
leikans. Svipað atvik kom fyrir í Englandi í sumar og
var skýrt frá því greinilega í alllangri grein í einu aðal-
málgagni spiritista og seinna, að miðillinn var sektaður
um 10 £, og mér var sýnd úrklippa, ég held úr Lundúna-
blaði, sem skýrði frá þessu máli í 9—10 smáleturslínum,
en ekki með margra dálka fyrirsögn. Meira hefi ég ekki
séð um það í blöðunum og engin félög höfðu afskifti af
því. Það var eins og hér lögreglumaður sem ljóstaðí
þessu upp, og gjörði það ekki eins drengilega og Sigurður
Magnússon, sem, eins og sjálfsagt var, virti trúnaðar-
reglur fundanna, og beið eftir að tilviljun kom honum til
iiðs. Hér veldur slíkt hálfgjörðu uppnámi, eins og alt
málefni spiritista væri í veði; en það hefir engin áhrif á
það, ekki fremur en einstaka falsaðir víxlar, sem fyrir
koma, hafa á gildi allra góðu víxlanna, sem eru flestir,
eða á alla víxlastarfsemi bankanna, sem er dásamlega
hentug og hjálpsamleg viðskiftaaðferð, og þó meinum