Lindin - 01.01.1932, Side 45
L I N D 1 N
48
Ræða,
flutt viö vigslu kirkjugarös að Sæbéli á IngjaMssandi
2U. júlí 1932.
Drottinn, faðir vor A himnum! Virstu að helga og blessa þessa
athöfn vora með nærveru þinni, að hvíldarreitur hinna burtsofn-
uðu megi hér vígjast þér, en hugir vorir hefjist í hæðir til þin
að samfundarstað þeirra, sem verða að skilja hér. Bænheyr oss
fyrir hann, sem er upprisan og lífið og líf gefwr þeim, sem trúa
á hann — þinn elskulegan son. Amen.
Drottinn sagði: »Drag skó þína
af fótum þér, því að sá staður,
sem þú stendur á, er heilög jörð«.
(2. Mós. 3., 5.).
Það var hinn mikli erindisreki drottins, Móses, sem
fékk þessa fyrirskipun. — Sagan segir frá því, að hann
var þá í útlegð í Midíanslandi og gætti hjarða tengda-
föður síns. Hann sá þá eitt sinn þyrnirunna standa í
ljósum loga, en hann brann ekki. Gekk Móses þá nær
til þess að sjá, hvað til þess kæmi, en þá barst honum
rödd drottins frá runninum. — En tilefni þessa við-
burðar var það, að ísraelslýður, þungt þjáður í Egypta-
landi, átti nú bráðum að frelsast og verða leiddur heim
til fyrirheitna landsins, og drottinn hafði valið Móse til
þessarar miklu framkvæmdar. Nú var verið á þessum
stað að birta Móse boðskap þessa og boðskapurinn sá
virðist hafa gert staðinn heilaga jörð og runna raddar
drottins Ijóslogandi.
Á öðrum stað hinna helgu rita talar rödd drottins
til mannanna: »öll jörðin er mín«. En engu að síður
eru það þó ákveðnir staðir á þessu óðali drottins, sem
minna oss sérstaklega á nærveru hans og umönnun