Lindin - 01.01.1932, Page 63

Lindin - 01.01.1932, Page 63
L I N D I N 61 í jötu lagður lágt, en ríkir þó á himnum hátt«. Það var unaðsleg stund, en samt vantaði mikið á, að hjörtun væru jafn glöð og venjulega, á þessari blessuðu hátíð. Kvöldið leið. Börnin skoðuðu leikföngin sín en léku sér ekki mikið. Veðrið var alltaf að lægja, og brimhljóðið í víkinni að minnka, en myrkrið grúfi yfir svart og ægi- legt eins og áður. Þegar klukkan var um 8 kom mamma yngri börnunum í rúmin sín, las með þeim bænimar þeirra og hlúði að þeim. Gunnar litli var einn í þeirra hóp. Hann hafði kveikt á ljóskerinu sínu og lét það standa við rúmið sitt. »Heldurðu ekki, mamma«, sagði hann, »að skipið hans pabba sé komið í höfn, ekki geta þeir verið að fiska á sjálfa jólanóttina?« »Nei, vinur minn, það gera þeir ekki. Jú, ég vona að þeir hafi far- ið inn fjörðinn í dag eða fari þá inn í nótt«. »Já, en þeir rata ekki, mamma, þeir sjá ekki til. Ætli að ljós- kerið mitt gæti ekki lýst þeim, ef þeir væru núna að fara inn fjörðinn?« »Nei, elsku drengurinn minn, það er svo lítið, og svo deyr strax á þvi, en ljós Guðs það lýsir svo skært, það deyr aldrei né dvínar, hvernig sem stormar og stórhriðar geisa«. »Bara að Guð muni þá eftir að láta ljósið sitt lýsa þeim«. »Já, Guð man eftir því, en við eigum líka að biðja hann þess«. »Já, það skulum við gera mamma mín«, sagði Gunnar litli, og þegar hann var búinn að lesa »faðir-vor« og var að lesa bænirnar sínar á eftir, hafði hann eina þannig: »Láttu nú ljósið þitt lýsa honum pabba — og skipinu hans«. — »Barðinn« var á leið inn flóann. Um morguninn hafði hann verið við veiðar djúpt úti fyrir Hymunni, því þar var sjórinn minni. Eftir hádegisleytið var svo lagt af stað til hafnar. Skipstjórinn hélt að hann væri viss að »taka fjörðinn« þótt dimmviðri væri. Þeir voru nú búnir að vera lengi á leiðinni, því bæði var sjógang- urinn til tafar og vegna sortans fóru þeir ekki nema rúinlega hálfa ferð, Þessvegna sóttist ferðin svo seint.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Lindin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lindin
https://timarit.is/publication/730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.