Vaki - 01.09.1952, Page 102

Vaki - 01.09.1952, Page 102
sem syndin getur náð á tökum, annað ekki. Skiptingunni er hraðað fyrir hræsni og ýkt mótmæli eldri dætra hans, en Kordelía er syndinni óskyld. Per- sónan er girnilegri til fróðleiks en flest- ir halda ef litið er á hana táknrænt en ekki sem efni til sálfræðiathugana. Hún dvelst með föður sínum áður en hann syndgar, sættir sig ekki við atferli hans, fer frá honum, en leitar aftur á fund hans þegar hann er hreinn orðinn. Allt miðbik leiksins er hún hvergi nærri, samt gleymum við ekki návist hennar. Hún er í rauninni hin guðlega náð. Hjá Dante getur náðin heldur ekki verið ná- læg þegar hann fer um helvíti og hreins- unareld, en hún sendir honum Virgil. Hún kemur fram vilja sínum með hjálp tækis, eins og Kordelía notar Kent. Hann er leiðsögumaður Lears að því er virðist, hann heldur vitsmunum sín- um óskertum þegar konungur brjálast. Og í þessum leikritahópi lítur Shake- speare ennþá á syndina sem ástleysi. Synd Goneríls og Regans er að elska fullir hræsni; dyggð Kordelíu er hin fullkomna ást. Hún nefnir hana „ástina samkvæmt heitum, hvorki meira né minna,“ en heitin sem sameina guð og menn krefjast fullkominnar ástar. Frakkakonungur segir hvað ástin eigi að vera: .... Love is not love When it is mingled with regards that stand Aloof from the entire point.“ Hann elskar Kordelíu fyrir auðmýkt hennar: „Fairest Cordelia, that art most rich, being poor; most choice, forsaken; most loved, despised." Þetta eru dyggð- ir, sem svara til syndar Lears, þegar hann fylltist hroka. Dante gerir því skil í tíunda óði Hreinsunareldsins, þar sem hinum hrokafulla er hegnt: ,,Vero é che piú e meno aran contratti secondo ch’avean piú e meno addosso; e qual piú pazienza avea negli li atti piangendo parea dicer; piú non posso." Eða: Satt er, að þeir voru meira og minna bognir því þeir báru byrðar, mis- jafnlega þungar. Og sá sem sýndi mesta þolinmæði virtist segja stynjandi: Meira get ég ekki. Meginefni Hreinsunarelds er ástin sem fyrirgefur, og Lear verður að lær- ast að fyrirgefa.... Þegar hann er að verða sturlaður hrópar hann: „Tremble thou wretch That hast within thee undivulged crimes Unwhipped of justice." Honum er réttlætið ríkara í huga en miskunnin, en hún er að sögn Shake- speares í Kaupmanninum í Feneyjum „máttugust alls.“ Dante hyggur að misk- unnin sé hin guðlega vera sem verður fyrst til að bjarga honum frá reiðinni sem koma skal, hún er „Donna gentil nel ciel“ í öðrum óð Helvítis. Ekki hef- ur Lear lært ennþá dyggð auðmýktar- innar þegar hér er komið sögu; hann segir: „I am a man More sinned against then sinning." En þannig syndgar sá sem skeytir ekki um syndina í fávizku sinni, „wich is carelessness, under the heading of accedia, which I called sloth“, — „en það er kæruleysi sem telst til accedia, og ég nefndi sinnuleysi,“ segir á ein- um stað miðaldahöfundur enskur. 1 Lear konungi kveður Shakespeare lokadóm yfir hættum sem stafa af ranglegri beit- ingu vitsmuna. 1 Hamlet og Othello bendir hann á hættur sem stafa af vits- munum einum. En honum hefur ekki tekizt að finna neitt í þeirra stað. Hann sýnir í Lear konungi að kóngur finnur TlMARITIÐ VAKI 100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.