Vaki - 01.09.1952, Síða 110

Vaki - 01.09.1952, Síða 110
Nordals birtir ljóð á fullkomlega óbundnu máli: Maðurinn er alltaf einn eftir Thór Vilhjálmsson á ef til vill eftir að valda straumhvörfum í ljóð- skilningi Islendinga þar sem Fornar ást- ir komu að öllum dyrum læstum. Á hinn bóginn gætir oft rökrænnar viðleitni í ljóðaskáldskap, hugsun mannsins hefur orðið svo 'háð röksemd- unum á vegferð sinni um aldirnar, að hið upprunalega sem leitar fram um ljóðið verður að beygja sig í viðjarnar sem rökhugsunin bindur tjáningunni. Ljóðlistin í óbundnu formi hefur átt erfitt uppdráttar hér á landi, þar sem hefðin hefur valdið samruna epíkurinn- ar, sögukvæðisins og ljóðsins í eitt foi-m sem kallað er bundið mál. Epíski skáld- skapurinn var bundinn rími og öðrum formeinkennum vegna sögulegra að- stæðna: Skáldið hlaut laun fyrir vel gert kvæði. Vel gert var það ef konungs- hirð og stórmenni líkaði. Það er eðli- legt að meiri og meiri áherzla sé lögð á ytra form, prjál, glymjandi og skraut. Það veldur skilnaði inntaks og forms, rýfur jafnvægið, sem er æðsta einkenni listar. Listin gerist íþrótt. Fornyrðis- lagið verður dróttkvæður háttur. Og þar sem epíkin var veigamesta listgrein Is- lendinga að fornu, færðust kröfur henn- ar yfir á það litla sem til var af annarri orðlist, og það sem eitt sinn var tízka, áunnin venja um útlit, varð í hugsun manna er stundir liðu óhjákvæmilegt skilyrði. Hefðin hafði gert lög úr vana. Þannig getur ytra formið í sögulegri vegferð sinni um aðstæður er skapa því félagslegt hlutverk orðið skilyrði tján- ingar, sem á í eðli sínu ekkert skylt við það í þeirri mynd sem það er til. Segja má að þetta sé uppistaðan í þeim styr er stendur um órímaða ljóðlist hér á landi: Bylting til upprunalegri ljóðtján- ingar, eins og Ijóð á að sér í raun og veru rís gegn hefðinni sem gengið hafði til virðingar vegferð formsins um ís- lenzka sögu. Það hlýtur að liggja í augum uppi ef framansagt er rétt, að ytra formið eitt verður ekki haft að mælikvarða er greina á milli ljóðs og prósa. Inn- takið, skírskotunin dæma um gildi og ágæti formsins. Formið er sjaldan ó- mengað, eins og hugsunin hlýtur ávallt að bera keim margs konar reynslu, bera í sér margs konar sögn. Túlkunin er bundin hinni skapandi vitund sjálfri, ekki formkynjaðri ákvörðun. Eða, til að orða öðru vísi, kannski réttar: Form- ið er sögnin, sögnin er til í forminu, sögn og form verða ekki skilin að, ó- skyldu formi verður ekki neytt upp á sögnina án þess að listgildi verksins bíði hnekki af. Þróunin gæti því í stuttu máli verið þessi: Frásögnin hefur bundizt ströngu formi til að aukast að áhrifum, til að íestast betur í minni og munni. Kröfur tímans, ytri aðstæður valda, er hún læt- ur æ glæsilegar í eyrum. En um leið verður ekki hjá því komizt að skilnaður verði með inntaki og útliti. Er lestrar- kunnátta — og skriftar — berst til lands hverfur epíkin að mestu, menn taka að skrifa sögur, er falla betur að form- kröfu efnisins. En formkröfur deyjanda frásagnarkvæðisins höfðu þá færzt yfir á ljóðið, sem átti sér annan uppruna: tjáning trúarlegrar og dulfenginnar reynslu, reynslu er átti sér staðaldur í innsta lífi mannsins. Segja má að hrun þess listskilnings er leit á listaverkið sem óaðskiljanlega eining forms og inntaks hafi einkum borið hratt að í lok miðalda, er vaxandi hirðlíf aðalsins og tilkoma konungs- hirða skópu kröfur um glæsibrag og TÍMARITIÐ VAKI 108
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122

x

Vaki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.