Helgafell - 01.12.1942, Page 26
304
HELGAFELL
brekku, og það verður brátt Ijóst, að þetta bæjarnafn hefur sama gildi menn-
ingarsögulega séð sem Lundur í Hnjóskadal. Geiri, sonarsonur Bárðar, bjó
að Lundum í Fljótshverfi. í þessu síðara landnámi Gnúpa-Bárðar var og
fyrrum bær með nafninu Lundur — þar var kirkja í kaþólskum sið. Auk
þessara tveggja Lunda, sem nefndir hafa verið, telur Finnur Jónsson í
bæjanafnaritgerð sinni upp Lund í Holtshreppi, Lund í Lverárhlíðarhreppi
og Lund í Lundarreykjadal. Sá bær hefur frá fornu kirkjustaður verið. Fleiri
fornbýli með þessu heiti munu ekki kunn. Lundur í Holtshreppi liggur rétt
hjá Knappsstöðum, heimkynni landnámsmannsins Þórðar knapps. Hann er
ásamt Þormóði ramma á Siglunesi berlega sænskur talinn í Hauksbók. —
Skammt frá Lundi í Þverárhlíðarhreppi var bústaður Hrómundar, fóstur-
bróður Ingimundar gamla, en að Lundi í Lundarreykjadal bjuggu í heiðni
niðjar Gríms hins háleygska. Hann var einnig fósturbróðir Ingimundar, en
bróðir Hrómundar. Frá Grími var komin Þorlaug gyðja, kona Odda Yrar-
sonar, og er hún talin systir Kjallaks Hrólfssonar að Lundi. Skal þess um
leið minnzt, að af þætti Geirmundar heljarskinns mátti ráða það, að hinir
fornu Skarðverjar, ættmenn Odda, hafi haft átrúnað á reynilundi nokkrum
heima að Skarði. Um Lundarbæina þarf ekki frekar að orðlengja. Þeir virð-
ast allir vera þar í sveit komnir, sem vænta mátti frjósemisdýrkunar og aust-
rænna menningaráhrifa í ríkum mæli. Það hafa bersýnilega verið fleiri land-
námsmenn en Þórir snepill einn, sem ,,blótuðu lunda".
Þá er að minnast Glúms Geirasonar. Hann er eina hirðskáldið, sem með
nokkru móti getur talizt með Austurlandsskáldum. Eftir hann eru 17 af þeim
26 vísum frá 10. og 11. öld, sem Austurland á, í hinu mikla fornkvæða-
safni. Vafalaust hafa Ijóð hans ekki varðveitzt á Austurlandi, enda naum-
ast nokkru sinni verið þar kunn. í Reykdælasögu er Geiri, faðir Glúms skálds,
kallaður austmaður, og er það furðu einkennilegt viðurnefni á landnáms-
manni. Geiri á aðeins tvo nafna hérlendis í heiðni, sem kunnugt er um,
Geira, sonarson Gnúpa-Bárðar, er fyrr var nefndur og Geira, son Geir-
dísar í Holti, sem líklega hefur verið af ætt Friðleifs hins gauzka landnáms-
manns í Holti. Frá landnámsöld er aðeins einn maður þekktur með viður-
nefninu „austmaður". Það er Eyvindur austmaður, faðir Helga magra, en
hálfbróðir Þrándar mjögsiglanda. „Eyvindur var því kallaður austmaður,
að hann kom austan af Svíaríki vestur um haf‘‘, segir í Hauksbók. Skýringin
er sjálfsagt rétt, en jafnframt verður að ætla, að hún hæfi einnig viðurnefni
Geira landnámsmanns. Af hinu sjaldgæfa viðurnefni er ef til vill hægt að
draga þá ályktun, að lítið hafi kveðið að þátttöku manna í íslandsbyggð, sem
komu beint hingað frá Svíaríki, en þar með er ekki sagt, að hlutdeild manna
af austnorrænum ættum í landnáminu hafi verið lítil. Athugum viðurnefni
Una hins danska. Hann var kynjaður úr Svíaríki, eins og Eyvindur aust-
maður, en faðir Una ,,átti jarðir á Sjálandi". Þar hefur Uni alizt upp og því