Helgafell - 01.12.1942, Page 30

Helgafell - 01.12.1942, Page 30
308 HELGAFELL látum okkur sjá. Frá 9. og 10. öld eru kunn nokkur mannanöfn, sem enda á „ormur“. Þau eru að því er E. H. Lind telur í nafnabók sinni þessi: Hall- ormur, Ketilormur, RáSormur, Veðrormur og Þórormur. Það er fróðlegt að athuga, hvar þau koma fyrir. Hallormur heitir tengdasonur Ingimundar gamla og býr í Vatnsdal. Við Atlavík, heimkynni Graut-Atla, bróður Ketils þryms, liggur HallormsstaSur. Fleiri Hallormsnöfn eru ekki kunn á íslandi, en eitt í Noregi frá því um 1400. Ketilormur er maður nefndur í Droplaug- arsona sögu og er einn um nafniS. Hann bjó við Lagarfljót, eins og Hall- ormur sá, sem Hallormsstaður er við kenndur. VeSrormur Vémundarson, vinur Ketils þryms, er og einn um nafn sitt. Hann bjó austur á Jamta- landi, og sótti Ketill hann þangað heim. Þórormarnir eru þrír, sem hægt er að staSfæra. Einn bjó í Þrumu á OgSum, hinu gamla heimkynni Ket- ils þryms hins elzta, annar í Þórormstungu í Vatnsdal, og var bróðir Hall- orms, tengdasonar Ingimundar, sá þriðji var frá RauSamel og dóttursonur Tungu-Odds. Loks er það svo RáSormur landnámsmaður í Vétleifs- holti, bróðir Jólgeirs. Vegna nafnanna hyggur Lind þá bræður helzt hafa austnorræna verið. Lind nefnir úr Noregi þessi ,,orm“-nöfn, auk þeirra, sem áður voru talin: LandormsstaSir heitir bær í Veradal. Frá því byggðar- lagi komu þeir Ketill þrymur og Graut-Atli. Frá lokum miðalda eru tveir Lind- ormar kunnir, annar á Hálogalandi en hinn á Jamtalandi. Ætlar Lind að LindormsnafniS muni vera ,,lánað“ frá SvíþjóS. Ég held það sé óhætt cið segja hið sama um allan ,,orm“—nafnaflokkinn í heild. Hann hefur naumast fest rætur í Noregi og virðist bundinn viS umhverfi þeirra fáu landnáms- mannaætta, sem raktar hafa veriS til Nórs konungs úr Austurvegi. Hugmyndin um komu Austurvegsmanna til Noregs, undir forystu Nórs, fer nú að skýrast. Um hana er þátturinn: , .Hversu Noregur byggðist“ ofinn. í einstökum ættum hérlendis hefur lifað minningin um hinn austnorræna uppruna þeirra, þrátt fyrir þá almennu, og reyndar að vissu leyti eðlilegu, söguskoðun, að þjóðin væri af norsku bergi brotin. Höfundurinn gerir ráð fyrir hreinu nýlendunámi Austurvegsmanna í Noregi, og má nú aftur minna á orðatiltæki Hornklofa: allvaldur Austmanna, austkylfur og austrænt man. En auðvitað lætur höfundur þáttarins þetta landnám eða nýlendustofnanir Austmanna sinna eiga sér staS löngu fyrir upphaf íslandsbyggðar. Hann hef- ur haft fyrir sér ættartöluromsur, sem náðu langt aftur x forneskju. ViS fyrstu liði þeirra miðar hann komu Austurvegsmanna til Noregs og tengir ættar- tölurnar við Nór með ættliðum, sem bera það meS sér að vera einber tilbún- ingur. Hve mikið af ættarakningum þáttarins er rugl og skáldskapur verSur ekki sagt, en ,,orm“—nöfnin hníga aS því, að hin gamla hugmynd um aust- norrænt hernám í Noregi sé ekki gripin úr lausu lofti. ÞaS er nú að vísu svo, að engin ,,orm“nöfn hafa fundizt í ættbálki Geir- mundar heljarskinns eða umhverfi hans. Þetta kemur ekki að sök, því að sízt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.