Helgafell - 01.12.1942, Síða 35
UPPRUNI ÍSLENZKRAR SKÁLDMENNTAR
313
undi hvergi, því fýsti Haraldur konungur hann að leita forlaga sinna til ís-
lands, en Ingimundur lézt það ei ætlað hafa, en þó sendi hann tvo Finna í
hamförum til íslands eftir hlut sínum, það var Freyr ger af silfri. Finnarnir
komu aftur og höfðu fundið hlutinn og náð ei. Vísuðu þeir til í dal einum
milli þriggja holta og sögðu honum allt landsleg, hversu háttað var, þar er
þeir skyldu byggja. Eftir það fór Ingimundur til íslands“. — ,,Hann var
um vetur í Víðidal í Ingimundarholti. Þaðan sáu þeir fjöll snjólaus í land-
suður og fóru þangað um vorið. Þar kenndi Ingimundur lönd þau, er honum
var til vísað. Þórdís dóttir hans var alin í Þórdísarholti“.
Það hefur sannarlega ekki verið neitt aúkaatriði fyrir Freysdýrkandann,
Ingimund gamla, að hóll eða hávaði skógi vaxinn væri við heimkynni hans.
En slíka staði nefndu hinir heiðnu forfeður okkar holt. Freyr ákveður, að
við holt skuli Ingimundur búa og hann fer að því. Meira að segja velur
hann sér tvívegis dvalarstað við holt, áður en hann fann hlut sinn í holtinu
svo sem nöfnin Ingimundarholt og Þórdísarholt sýna. Ingimundur trúir á
heilög tré, að sið Austurvegsmanna eins og skáldin Þórir snepill og Helgi
Ásbjarnarson. Nú verður það enn ljósara en áður, hvers vegna Lundar-
bæirnir finnast í þeim byggðarlögum sem fyrr greindi. Um þá holt-bæi, sem
byggðir voru í heiðni er sömu sögu að segja. Það eru menn með austnorrænni
menningu, sem þá hafa reist. í Landnámabók er getið um allt að 30 holt-bæi.
Enginn þeirra er á Norðausturlandi. Fyrst rekumst við á Holt landnáms-
mannsins Friðleifs hins gauzka, þar næst Ingimundar- og Þórdísarholt. Þá
Hjarðarholt í Dölum, sem að sögn Laxdæluhöfundar var byggt af Ólafi
pá, en Höskuldur faðir hans átti frændlið í Danmörku, að því er sami heim-
ildarmaður telur. Björn austræni, sonarsonur Bjarnar bunu og mágur hins
austnorræna herkonungs Ólafs hvíta, byggir að Borgarholti í Bjarnarhöfn.
Sonardóttir hans var Gerður, móðir Guðlaugs auðga að Borgarholti í Mikla-
holtshreppi. Hann var tengdasonur Þuríðar Tungu-Oddsdóttur, sem búið
hafði að Hörgsholti í sömu sveit. Rétt hjá bústað Tungu-Odds liggur Reyk-
holt. Þangað skauzt Oddur í bað, að sögn Landnámabókar, en bær Jörundar
hins kristna Þormóðssonar, móðurbróður hans á Akranesi, hét Jörundarholt.
f Þrándarholti bjó Þrándur mjögsiglandi, bróðir Eyvindar Austmanns, en
í Vétleifsholti Ráðormur, bróðir Jólgeirs. Við má svo bæta, að Ófeigur
grettir ,,bjó að Ófeigsstöðum hjá Steinsholti", Þormóður skafti í Skafta-
holti og Össur, faðir Þórðar Freysgoða, í Bakkárholti. Allir eiga þessir þrír
menn eins og Björn austræni í Borgarholti að vera af karlkvísl Vatnars Vik-
arssonar. Er nú talinn helmingur þeirra holt-bæja, sem nefndir eru í Land-
námabók. Verður það ekki ofmælt þótt sagt sé, að dæmin gefi ótvíræða
bendingu um hinn menningarlega uppruna bæjamafnanna fomu, sem kennd
eru við holt.
En við skulum ekki ganga í neinni óvissu á þessu sviði. Það er óþarft.