Helgafell - 01.12.1942, Side 148

Helgafell - 01.12.1942, Side 148
418 HELGAFELL taldi mig ekki geta gert betur. Hafði ég þó ritað þá sögu fyrst sem smá- sögu. Enn þá verr gekk mér á sínum tíma með Ströndina. Ég vann að henni heilan vetur. Stundum fór ég á fætur klukkan þrjú að nóttu og settist við skrifborðið. Að verkinu loknu leið mér illa, var eitthvað óánægður. Samt fór ég í sparifötin og ætlaði að færa út- gefandanum handritið, en fór eitthvað að glugga í það, — og brenndi því að þeim lestri loknum, brenndi hvertblað, nema ofurlítinn ljóðrænan kafla, sem mér þótti sérstaklega vænt um. Það var mikill hörmungardagur, en ég vildi ekki eiga á hættu að freistast til, að nota kafla og kafla, sem að vísu voru ekki alveg fráleitir, en samt ófull- nægjandi. Því var bálförin ger, og af- stýrði ég þannig þeirri hættu, að hand- ritið truflaði mig. Kaflann, sem ég hafði látið óbrenndan, setti ég fram- an við textann, eins og hann varð, þegar hann kom á ný úr deiglunni, en ráðamaður útgefanda benti mér á, að þessi inngangur væri eitthvað utan- garna, og tók ég þá tvær línur úr hon- um og felldi inn í miðja bókina, þar sem þær gátu ekki hneykslað nokk- urn mann. En þessar tvær línur eru það, sem eftir varð af verki heils vetr- ar. — Á líkan hátt fór fyrir mér um söguna Sœlir eru einfaldir, nema þar hætti ég í verkinu miðju og byrjaði á nýjan leik. Um Svartfugl er þessa sögu að segja: Síðsumars árið 1913 átti ég leið á skipi fram hjá Rauðasandi og var af skipsfjöl sýndur bærinn Sjöundá og sögð ásta-, glæpa- og raunasaga þeirra Steinunnar og Bjama. Vissi ég þá þegar, að ég ekki myndi losna við það efni aftur án þess að gera því nokkur skil. En ég fann á mér, að bezt var að fara að engu ótt. Beið ég í sextán ár með að vinna úr efninu. Á þeim árum átti ég þó nokkrum sinn- um leið um Reykjavík. Flesta þá morgna, er ég vaknaði hér í bæ, fór ég snemma á fætur og gekk upp á Skólavörðuholt og oft lengra, en kom alltaf við hjá Steinkudysi, þarsem ólánskonan vestfirzka hafði verið urð- uð. Mér fannst hún einhvern veginn koma mér við, að ég stæði á einhvern hátt í óbættri sök við hana og þau Bjarna bæði. Villigötur geta fleiri far- ið en þau; villigötur höfum við flest öll farið. Þegar ég réðst loksins í að rita söguna, — sem átti að heita Sjöundá, — var mér orðið ósköp hlýtt til þess- ara ólánssömu manneskja, en söguna reit ég eins samkvæmt sannleikanum og mér framast var unnt. — Annars skiptir það litlu máli, hvernig bækur verða til, og hef ég aðeins sagt frá þessu að gamni. — Hlutverk listamannsins í þjóðfélag- inu er nákvæmlega hið sama og hvers annars þegns: að þjóna þjóð og landi eftir beztu getu. En leiðin til þessarar þjónustu verður þeim, er við list fást, vandrataðri en flestum öðrum, og liggja til þess þau eðlilegu rök, að hann verður að stika hana út sjálfur. Fyrir kemur, að af honum er krafizt einhvers þess, er ríður í bága við skyldur hans við mannfélagið, og get- ur hann þá aðeins þjónað landi sínu og þjóð með því að vera trúr hinum æðri skyldunum, hverjar afleiðingar sem það kann að hafa fyrir sjálfan hann. Mér fyrir mitt leyti finnst, að bræðralag í mannheimum sé hið eina, er að sé vert að stefna og vinna fyrir. Komi þetta fram í verkum mínum, ylji þau öðrum brjóstum, veki þau menn til þess, sem betur má fara, er ég á- nægður og þakklátur, og má ef til vill vona, að bækurnar, er ég fann ungur í draumi við veginn, og reit síðan á ýmsum aldri við veginn, einnig í draumi, megi mæta öðrum á vegum draums og lífs og hafa þeim eitthvað það að færa, er þeir vildu síður hafa án verið. Gunnar Gunnarsson.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.