Helgafell - 01.12.1942, Page 155

Helgafell - 01.12.1942, Page 155
BÓKMENNTIR 425 ,,Svo mánablíÖ og björt aem mjöll, ó, björt sem mjöll akein ásýnd þín", o. s. frv. Ég vil ekki Ietja Jón til að yrkja, ef hann hef- ur ríka löngun til þess, né leggja neinn dóm á hœfijeika hans og þroskamöguleika. — Menn verða ekki skáld alveg fyrirhafnarlaust, og jafn- vel mikið erfiði gerir menn ekki að skáldum, ef þá skortir hœfileika. Ef Jón ætlar sér að verða skáld, verður hann framvegis aS vera miklu vandlátari við sjálfan sig. Simon Jáh. Ágústsson. Ólajur Jóh. SigurSsson: KVISTIR í ALTARINU. Sögur. Víkingsútgáfan. 1942. 262 bls. Verð ób. kr. 23.00. Ólafur Jóh. Sigurðsson er einn þeirra manna, sem snemma hefur fundið köllun sína í Jífinu. Barnungur fór hann að semja sögur og hefur haldið því áfram æ síðan. Fyrsta bók hans, KiS AljtaVatn, kom út þegar hann var aðeins 16 ára. Síðan hefur hver bókin rekiS aðra, og er þetta hin fimmta í röðinni, en í vissum skiln- ingi er þetta fyrsta bók hans, því að hún mark- ar tfmamót í þroska hans og rithöfundarferli. Fyrri rit hans eru flest æfingar, sum eins konar bernskubrek, enda var þess ekki aS vænta, að jafnungur maður skapaði heilsteypt listaverk. Til þess skorti hann kunnáttu, lífsreynslu og persónuþroska. ÞroBkaleiðir manna eru marg- víslegar, og þá einnig skálda og rithöfunda. Sumir hafa varla slitið barnsskónum, er þeir hefja rithöfundarferil sinn, en aðrir telja heilla- vænlegast að verja a. m. k. fyrri hluta æskuár- anna f nám og starf til að efla menntun sína og lífsreynslu. Sitt hæfir hverjum, og eins og „allir vegir liggja til Róm", komast listamenn til þroska eftir óteljandi leiðum. Margir hafa gert sér góðar vonir um þennan unga rithöfund, ekki einungis af sögum hans, heldur og af ritgerðum og ljóðum, sem hann hefur birt í blöðum og tímaritum. Kvistir i alt- arinu er safn átta smásagna og tekur það fyrri bókum höfundar langt fram. Þótt Ólafur sé að- eins hálfþrítugur, hefur hann náS óvenjulegri leikni og sjálfstæði í stfl. Hann er gæddur næm- um athugunarhæfileika og hefur þegar persónu- legan frásagnarhátt og byggingarlag. Á flestum sögunum er dapurlegur blær. Þær eru reyndar nokkuS misjafnar, Farkennarinn og Kross og striS þykja mér einna beztar, en Leikur ViS lax einna veigaminnst. Ólafur er að vaxa upp úr því, að láta ýmsar tízkukröfur samtfðarinnar um það, „hvemig list eigi að vera", rugla sig f rfminu. Hann ætti að treysta á mátt og megin og fara eigin gðtur án leiðsögu annarra. Slmon J6h. Ágústsson. Er nokkuð hinu megin? Þárbergur ÞárSarson: INDRIÐI MIÐ- ILL. Endurminningar Brynjólfs Þor- lákssonar söngkennara. Víkingsútgáfan 1942. VerS ób. kr. 25.00, ib. kr. 30.00. Ymsum eru enn í fersku minni miklar sagn- ir og furðulegar um miðilshæfileika Indriða Ind- riðasonar, og voru fyrirbæri þau, er áttu að hafa gerzt í sambandi við hann, eitt höfuðum- ræðuefni manna um aljt land á sfnum tíma. Nú hefur Þór- bergur ÞórSarson tekið saman nákvæma frá- sögn um fyrirbæri þessv, og kemur þá í ljós sem kunnugir höfðu ávallt fullyrt, að sögur þær, er af þeim fóru, hafa verið merki- lega lítiS ýktar, enda hefur þess ekki þurft við, því að margir þeir fyrirburðir, sem bókin greinir frá, standast fyllilega samanburð við tröllefldasta draugagang þjóðsagnanna. Þó mun engu að síður erfitt að mótmæla því meS skyn- samlegum rökum, að fyrirbærin hafi f raun og veru átt sér stað, en hafi hins vegar veriS um svik að ræða af hálfu hins unga miðils, eins og sumir hafa viljað álykta, þá verður ekki annað sagt, en að þau vitni um svo óvenjulega kunn- áttu og leikni, að það geri „svikin" engu minna „yfirnáttúrleg" en fyrirbrigðin eru sjálf í augum þeirra manna, sem trúa því, að þau hafi verið miðlinum ósjálfráð. — Flest gerðust fyrirbrigðin í sambandi viS fundi Tihaunajé- lagsins svonefnda, og hefur Þórbergur borið frá- sagnir sínar saman við fundabækur þess, að því leyti, sem þær hafa hrokkið til. Þá styðst höfundur einnig við ýmsar prentaðar heimildir frá þeim tfma, er fyrirbrigðin gerðust, en aðal- heimildarmaður hans er þó Brynjólfur Þorlúks- son söngkennari, og er bókin þvf aS verulegum hluta endurminningar hans. En Brynjólfur sótti flesta fundi Tilraunafélagsins um langt skeið og var auk þess nákunnugur miðlinum, og efar enginn, sem til hans þekkir, að hann segi það eitt, er hann veit og man sannast.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.