Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Side 12
106
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
hernuinið land okkar. Hún á að vera sýnilegt tákn þess,
að Islendingar líta á sig seni sjálfstæða þjóð og gera kröfur
til, að aðrar þjóðir geri svo. Hún er eitt af þeiin verkefn-
um, sem við viljum sameina um krafta þjóðarinnar, og
hún á að gefa æskunni trú á einingu hennar.
Snorrahöll verður tilkomumesta bygging á íslandi, en
það er engu að síður mjög auðvelt fyrir okkur að koma
henni upp. Það er hægt að reisa liana fyrir aðeins lítið
brot af nokkurra ára eyðslufé þjóðarinnar. Einstaklingar
og félög verða að leggja til hennar ríflegt fé, en auk þess
riki og hær. Fyrir öll þau félög og stofnanir, sem hér geta
átt hlut að máli, er leikur einn að reisa eina byggingu
sameiginlega, þótt erfiður sé róðurinn hverjum, einstök-
um. Menningarfélag fslands, sem gengst fyrir bygging-
unni, verður að finna hentuguslu leiðirnar til fjáröflun-
ar. Undirbúningur byggingarinnar á að hefjast á næsta
ári, og henni á að vera lokið 1950.
Arfi íslendinga er ætlað ]iað hlntverk að vekja íslenzku
þjóðina til skilnings á sjálfri sér og virðingu fyrir sögu
sinni og menningu. Snorrahöll er framhald á sömu liug-
sjón. Þúsundir íslendinga hafa sameinazt um að styrkja
útgáfu Arfs fslendinga. Tugþúsundir íslendinga munu
leggja fram sinn skerf til tryggingar því, að Snorrahöll
verði reist, lifandi minningarfullt tákn um eilífan menn-
ingarvilja og frelsisþrá íslenzku þjóðarinnar.
MeSan þessi grein var í prentun, hefur Páll ísólfsson vakið í
útvarpserindi máls á nauðsyn slíkrar byggingar, sem hér er
gerð að umræðuefni, og Árni Jónsson frá Múla hefur i dag-
blaðinu Vísi vikið að hinu sama.