Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Side 90
184
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
araskólanum og sótti tíma í Háskólann. En hugur hans
Jineigðist meir og meir að kennslunni, liann hætti við há-
skólanámið, sótti um kennarastöðu við Laugarnessbarna-
skóla og fékk hana. Um sama leyti giftist hann Sigríði
Þorgrímsdóttur frá Laugarnesi. Gaf hann sig nú við kennsl-
unni, óskiptur og af hinu mesta kappi næstu tvö árin, en
þá fór að bera á hinu þunga heilsuleysi, sem smátt og
smátt lamaði orku lians og nú hefur dregið hann til dauða.
Hvað var það þá, sem var óvenjulegt við Eirík Magnús-
son og gerir hann ógleymanlegan öllum, sem kynntust lion-
um? Hann var gáfaður, vel að sér, skemmtilegur, — en
það eru margir. Þungamiðja persónleika hans fólst í allt
öðru. Hann liélt mjög upp á rússneska skáldið Gorki, enda
lineigður mjög fyrir góðan skáldskap. Ein af smásögum
Gorkis lieitir: „Vinur minn, furstinn,“ og munu margir við
liana kannast í ágætri þýðingu Jóns frá Hlíð. Gorki segir
þar frá manni, sem er sjálfur allslaus flækingur, en af
hreinni mannelsku leggur á sig ótrúlegustu liluti til að
hjarga illa gerðum og illa gefnum unglingi frá því að fara
alveg í hundana. Það kvelur hann að vísu að liljóta ekkert
annað fyrir en vanþakklæti, en honum dettur eklci eitt
augnablik í hug að gefast upp, eða i raun og veru að ætlast
til neins af neinum. Honum er það eilt nóg, að úthella sjálf-
um sér í starfi fyrir óverðuga meðbræður, sem á vegi hans
verða. Ég sagði einu sinni við Eirík: „Ef Gorki hefði þekkt
þig, væri ég ekki í vafa um, að liann væri að lýsa þér í
þessari sögu.“ Eiríkur Magnússon var alla tíð fátækur
maður að þessa heims fjármunum, en hann var þó alltaf
að gefa, öllum, sem með honum voru og eitthvað vildu
þiggja af gnægð hjarta lians. Hann gaf peninga, þegar liann
átti þá, en annars gaf hann tíma sinn, ástúð sína, samúð
og djúpan skilning; líf og heilsu sparaði liann ekki heldur.
Það er trúa mín, að ef hann liefði hugsað um sig sjálfan
og sína eigin líðan, eins og við gerum flest, þá hefði ævi
hans orðið lengri.
Það má nærri geta, hvílíkur afburðafélagi fyrir unglinga