Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Blaðsíða 114
208
TÍMARIT MALS OG MENNINGAR
ekki eins, og var þegar gerð ný pöntun. Afgreiðsla hennar dróst
svo, að pappírinn var fyrst sendur með „Sessu“, en skipið fórst
á leiðinni frá Ameríku í sumar. Jafnskjótt og um þetta fréttist,
var pappírinn pantaður enn að nýju, og er hans enn von með
fyrstu ferðum. Við treystum því, að hann komi svo snemma,
að félagsmenn geti fengið bókina fyrir jól, en þrjózkumst við
í lengstu lög að prenta síðara hindið á annan pappír en það
fyrra.
Þegar við sáum, livað dróst útkoma aðalbókarinnar, ákváð-
um við að láta rit Eyjólfs Guðmundssonar, Afa og ömmu, þriðju
bók Máls og menningar á þessu ári auk timaritsins, verða á
undan, og kemur hún út samhliða þessu hefti. Eyjólfur Guð-
mundsson er bóndi á Hvoli í Mýrdal. Trúum við ekki öðru
en félagsmönnum þyki tilbreytni að fá nú frumsamda bók eft-
ir islenzkan bónda og það jafn vel ritaða. Þróun síðustu ára-
tuga hefur orðið svo ör hér á landi, að það, sem gerðist á
síðustu öld, er tíkt og framandi heimur i augum þeirrar kyn-
slóðar, sem nú lifir. Á þessum snöggu umbreytingartímum þjóð-
lífsins er okkur því einkar hollt að líta öðru livoru til baka
og rifja upp þá lífshætli, sem afar okkar og ömmur áttu við
að búa, jöfnum höndum sem við reynum að öðtast dýpri skiln-
ing á sjálfri samtíð okkar. Dr. Einar Ólafur Sveinsson ritar for-
mála fyrir Afa og ömmu, og visa ég til umsagnar hans um
bókina.
Auk þessa 7 arka heftis af Tímaritinu, og fyrra heftisins er
var 6 arkir, kemur mjög hráðlega þriðja heftið. Tímaritið er
þannig mjög myndarleg bók, þegar öll heftin eru komin, og
viljum við ráðleggja félagsmönnum að láta hinda þau inn. Það
er rétt fyrir menn að gera sér þegar ljóst, að Tímaritið verð-
ur eftirsótt og verðmæt eign langt fram í timann.
Við getum ekki nógsamlega hrósað happi yfir því að eiga
til pappir í fyrstu bindin af Arfi íslendinga, svo að útgáfa
lians getur hafizt næsta ár, eins og upphaflega var ráð fyrir
gert. Treystum við félagsmönnum til að styrkja þá útgáfu eftir
megni, svo að hún geti orðið sem allra glæsilegust, þrátt fyrir
þá óstjórnlegu hækkun, sem nú verður á öllum hlutum. Fyrsta
bindið af mannkynssögunni á líka að koma næsta ár, svo að
félagið verður samtímis með tvö stór verk.
Við viljum sjá til, þangað til næsta hefti kemur, hvort papp-
írinn verður kominn í Rit Jóhanns Sigurjónssonar. Farist send-
ingin af einhverjum ástæðum enn fyrir, verðum við að gera
nýjar ráðstafanir vegna útgáfunnar í ár, sem við skýrum þá
frá í næsta hefti. Kr. E. A.
Félagsprentsmiðjan h.f.