Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Blaðsíða 86
180
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ar. Eu fátt er raunalegra og aumkunarverðara en ungt
fólk, sein verður spellinautnum, innantómum fíflalátum
og skröltandi prjáli að bráð. Gleði þess fóllcs er ekki þrung-
in hinum græna og frjóva safa, heldur gulu eitri, og örlög
þess eru flestum sorgarleikjum harmþrungnari. Það er af-
sakanlegt í fj'llsta máta, þótt menn geri einhver glappa-
skot á gönuskeiðisaldrinum, enda fellur það í lilut flestra,
en hitt er óafsakanlegt og fyrirlitlegt að lialda áfram að
endurtaka sömu glappaskotin.
Reykvíska æskan vill skemmta sér og eignast rándýra
loðfeldi, meðan hlóðugasta styrjöld veraldarsögunnar er i
algleymingi og liver hrauðhleifur er veginn og mældur,
áður en hoUum er deilt. Það er nú svo. En við megum
ekki gleyma því eitt andartak, að hver krónupeningnr at'
stríðsgróðanum er litaður mannablóði. Það verðum við
stöðugt að liafa hugfast, þegar okkur langar til að sækja
dýrar glamurskemmtanir cða eignast loðfeld. Við megum
ekki ganga þess dulin, að nú er óheppilegur tími til þess að
slá jörðina dansandi fæti. Við verðum liiklaust að fórna
hinni skammvinnu dægurgleði á altari hugsjónanna, án
þess að láta myrkur styrjaldarinnar slá fölskva á blys
hjartsýninnar eða draumsýn framtíðarlandsins.
Æskan getur ekki litið á hernaðarvinnuna eins og fagn-
aðarerindi, heldur her að skoða liana sem voveiflegt neyð-
árúrræði, einskonar dýflissuvist, og leggja metnað sinn í
að losna úr lienni. Æskan verður að krefjast þess, að þjóð-
félagið fái henni til úrlausnar glæsileg og lífvænleg verk-
efni. Og þverskallist forráðamenn þess við þeirri réttmætu
kröfu, þá verður hún að taka til sinna ráða. Þjóðskipulag,
sem getur ekki orðið við jafn eðlilegri heiðni þegna sinna,
á engan tilverurétt.
Einmitt nú, meðan peningaflóðið stendur sem Iiæst, gefst
æskulýðnum tækifæri til þess að sýna, hvað í honum býr.
I stað þess að öngla saman í sparisjóðsbók, reka gróða-
brall eða eyða fjármunum í óhóf, glingur og glys, á æsku-
lýðurinn að sameinast um stórbrotin átök, lyfta grettis-