Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Side 105

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Side 105
UM UPPHAF ÍSLANDS OG ALDUR 95 ekki ólíklegt, að allir þessir blágrýtisskikar haíi náð saman um skeiö og myndað landbrú um þvert Atlantshaf milli Bretlandseyja og Grænlands. Island og Færeyjar eru þá leifar af henni, hitt hefur sigið í sæ eða brotnað niður í sjávargangi. Ég gat bess áður, að frá upphafi tertíertímans væru liðnar um 60 millj. ára. En ég hef ekkert á það minnzt, hvernig sú tímalengd hafi verið reiknuð. Afstaða jarðlaga og steingervingar sýna aðeins, í hvaða röð og á hvaða tímabili þau hafa myndazt. En um lengd tímabilanna og raunverulegan aldur jarðlaganna, t. d. í árum, er heldur lítið á þessu að græða. Aðferöin til að finna raunverulegan aldur berglaga má heita ný. Ekki er þess neinn kostur að segja frá þeirri aðferð hér. Þess skal aöeins getið, að hún styðst við ummynd- un vissra efna — sem kallast radíóaktíf ejni — í bergtegundunum. Efni þessi breytast jafnt og þétt úr einu í annað, og af hlutfallinu milli óummyndaðs efnis Qg ummyndaðs má reikna, hve langt er, síð- an bergtegundin storknaði, sem þau finnast í. Aðferð þessi hefur reynzt furðu áreiðanleg. Hún hefur staðfest fullkomlega röð jarð- sögutímabilanna, sem studdist áður eingöngu við þróunarsögu dýra- ríkisins, er steingervingafræðingar höfðu rakið. En eftir að farið var að beita nýju aðferðinni (á allra síöustu áratugum), fékkst miklu betri vitneskja um lengd tímabilanna hvers um sig. Reyndist hún talsvert önnur en menn höfðu áður gert sér í hugarlund, og yfirleitt reýndust tímabilin og þar með öll jarðsagan lengri en fyrr var haldið. Aldur íslands, 60 milljónir ára, er stuttur tími, þegar hann er borinn saman við aldur sjálfrar jarðskorpunnar. Elzta berg, sem rannsakað hefur veriÖ með nýju aðferðinni, hefur reynzt vera milli 17 og 18 hundruð milljóna ára gamalt, og þetta berg ber það með sér, að þykk jarðskorpa var til, áður en það myndaðist — að líkindum ekki ólík þeirri, sem mannkynið byggir nú. Aldur sjálfrar jarðskorpunnar hefur veriÖ áætlaður um 2000 millj. ára a. m. k. ísland er mjög ungt land, ef aldur þess er borinn saman við aldur annarra landa jafnstórra. Ekkert land í Evrópu er eins ungt nema Færeyjar (og nokkrar eyjar enn smærri), sem eru líkar því að aldri. Sköpun íslands hefur verið fádæma hröð, og þótt hún tæki meira en sex daga, er vandfundin meiri og fegurri smíði, sem gerð var á skemmri tíma.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.