Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Blaðsíða 84
146
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
gang að henni úr forsalnum. Að öðru leyti virðist skipun þessi hin
ákj ósanlegasta og fullnægja vel öllum kröfum.
(Eins og menn munu taka eftir, er misræmi í flataruppdrættinum á
milli lengdar efri og neðri hæðarinnar. Þetta stafar af því, að ég hef
hér valið þær tvær teikningar, sem mér virtust gleggstar, en eiga
þó ekki alveg saman. En þrátt fyrir þetta geta menn gert sér fulla
grein fyrir hugmyndinni.)
Kjallari. Undir neðri hæðinni er önnur, aðeins niðurgrafin, þar
sem upp í brekkuna veit, og er þar gert ráð fyrir íbúð húsvarðar,
ljósmyndastofu safnsins, viðgerða- og rannsóknastofu og öðru slíku,
sem að rekstri safnsins lýtur. Undir forsalnum og allri vesturálmunni
eru síðan miklar og rúmgóðar geymslur fyrir alla þá listmuni, sem
ekki eru hafðir uppi, og er þeim hagað samkvæmt því skipulagi, sem
bezt hefur reynzt og tryggir gripina að fullu gegn skemmdum.
Eins og sýnt er, hefur Skarphéðinn skipt allri byggingunni í tvo
aðgreinda hluta. I öðrum hlutanum er hið eiginlega listasafn, en í
hinum er allt það annað, sem safninu ber. Allt skipulagið er með
afbrigðum einfalt og hentugt og ber þess ljósan vott, að hér hefur ekki
verið fáhnað út í loftið, eins og því miður vill oft brenna við, heldur
byggt á nákvæmri athugun, smekkvísi og skýrri dómgreind. Og þó
verður að hafa það hugfast, að myndir þær, sem hér eru birtar, eru
aðeins nokkrar af fjölmörgum frumdráttum, og mega því alls ekki
skoðast sem endanlegar tillögur.
Mörgum mun eflaust verða sú spurning efst í huga, hvort safn það,
sem hér er ráðgert, verði nógu stórt, — því auðvitað bætast við munir
frá ári til árs.
í söfnum stórborga, eins og National Gallery í London eða Louvre,
verða sömu gripirnir, og þeir merkustu, helzt alltaf að vera til sýnis,
því þangað kemur daglega straumur manna, sem aldrei hefur komið
áður og kemur kannske aldrei síðan. Um söfn smærri borga gildir
nokkuð annað. Þar verður að gera ráð fyrir því, að sama fólkið sæki
þau frá ári til árs, listelskir menn kannske oft á mánuði. Þessvegna er
það jafnvel frekar til bóta, að oft sé skipt um myndir og fjölbreytnin
þarmeð aukin. í borgum á stærð við Reykjavík virðist mér þetta
sjálfsögð regla og mundi vafalaust auka aðsóknina að safninu að
mikluni jrmn..... ^ .......... _ . .
01