Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Page 107

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Page 107
SVAR VIÐ RITDÓMI 169 heppni að höf. Eyjasögu tókst að ná í myndir frá eldri tímum, til þess að hægt væri að sýna breytingarnar, er orðið hafa fram til vorra tíma. En þessu gengur J. G. Ól. vendilega framhjá og telur slíkar myndir vanti í bókina. Nokkrar myndir voru til frá síðari hluta fyrri aldar eftir kaupmennina hér og nokkrar eftir Friðrik Gíslason, ljósmyndara. Gísli J. Johnsen, kaupm. tók allmikið af myndum á fyrsta fjórðungi þessarar aldar, af bátum, fyrirtækjum og höfninni, og hafa þessar mynd- ir komið í góðar þarfir. Bæjarsjóður lét í té þær myndir, er hann átti í safni sínu. Hefðu þessar myndir ekki verið til, hefði verið erfitt að gjöra samanburð á húsum, hafnarmannvirkjum o. fl. í kaupstaðnum frá því fyrir aldamót og þar til nú. Berið t. d. saman 2 myndir, eftir Kjartan Guðmundsson ljósm., við myndina af kaup- staðnum frá 1890. Staurblindir hljóta þeir að vera, sem ekki sjá hinar miklu hreytingar, er átt hafa sér stað, eða renna að minnsta kosti grun í framþróunina. Bryggjur, verksmiðjur, hraðfrystihús, vörugeymsluhús, hafnarmannvirki öll og hafnargarðar, hvar er slíkt að sjá á gömlu myndinni. Myndir af kauptúninu eru þarna hvorki meira né minna en frá um 1880—1890, 1900—1910, 1912—1915, 1920—1930, 1936 og 1940. Frá svipuðum tímum eru myndirnar við höfnina. Berið saman vegina og stígana og alla strandlengjuna á myndunum nú við gömlu mynd- ina, einnig myndina af Skildingafjöru frá því 1900. Ég hygg að telja megi Eyja- sögunni til gildis, að tekizt hafði að afla til hennar fágætra mynda. Langir kaflar eru í sögunni um starfssögu Eyjabúa. Er þar sýnt hvemig margs konar áþján og ófrelsi herti oft að sjálfsbjargarviðleitninni og eðlilegri framþróun var markaður þröngur bás. Sýnt er einnig hversu skjótlega skiptir um, er menn fá að standa frjálsir að atvinnuvegum sínum. Stikla hefur auðvitað orðið á því helzta. Mörg hetjusagan hefur sjálfsagt gerzt, er enginn þekkir og aldrei verður skráð. Staðhæfingar J. G. Ól. um að í Eyjasögu sé sniðgengið það, er áður hafi verið um Eyjarnar ritað, eru fjarri sanni. En að vísu hefur verið fátt um slíkar sjálfstæðar rannsóknir. Merkur sagnfræðingur hefur komizt svo að orði, að margt af því sem lýst er í Eyjasögu liafi verið landsmönnum almennt og jafnvel fræði- mönnum ókunnugt fram á þennan dag. Höf. Eyjasögu hefur reynt að brjóta ísinn varðandi hin erfiðu viðfangsefni um skatta, tolla og tíundir, sem og landskyldir og leigur, með því að ómögulegt virtist að gera atvinnusögunni full skil án rann- sóknar á fyrrgr. efnum. Þetta telur J. G. Ól. óþarfa. Margur fróðleiksfús maður hefur hinsvegar látið í ljós mikla ánægju yfir þessum köflum. Landnám. Það telur J. G. Ól. misnotkun á heimildum að styðjast við hinar al- mennu skoðanir og Landnámu um dráp þræla Hjörleifs og Vestmannaeyjaheitið. Ilöf. Eyjasögu var búinn að ganga frá þessum kafla sög. áður en út kom „Ömefni í Vestmannaeyjum", Rvk 1936. Um Herjóljsbœ. Að fiskigarðar kunni fyrrum að hafa verið í Dalnum er næsta líklegt og styðst og við skoðanir eldri manna. Þar hljóta Tindadalsgarðar, er getur í skjölum frá lokum 16. aldar að hafa verið. Fiskur var allur fluttur á hestum upp í fiskigarðana, svo engin rök eru það hjá J. G. Ól„ að langt liafi verið að flytja fiskinn. Sumir fiskigarðanna, er kunnugt er um, lágu nærri því eins langt frá sjó, t. d. garðamir fyrir ofan Efri Brimhóla. Fyrir ekki alllöngu var og byggður þerri- reitur nærri inn undir Dalnum. Aldagömul sögn er um það í Eyjum, að bær Her- jólfs, landnámsmannsins, hafi orðið undir skriðuhrúgaldinu mikla í Dalnum, norðan Fjósakletta, er komið hefur úr Blátindi. Bæjarstæði þama er í engu ólík- legra en mörg bæjarstæði sem kunnugt er um undir fjöllum, t. d. Steinabæimir undir Eyjafjöllum. J. G. Ól. segir þessa æfagömlu kenningu um Herjólfsbæinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.