Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 11
TÍMARIT
MÁLS OG NEININ6AR
RITSTJÓRAR
Kristinn E. Andrésson og Jakob Benediktsson
Maí 1953 14. árgangnr 1. hefti
Nýr bóhaflohhur Ifláls og menningar
Fyrirkomulag það sem Mál og menning tók upp með kjörbókaflokknum á síð-
asta ári hlaut í raun réttri mjög góðar undirtektir, þó að þátttaka félagsmanna
yrði ekki nógu almenn og enn vanti talsvert á að inn sé komið fyrir kostnaði. Eins
og frá var skýrt í boðsbréfinu í fyrra leitast Mál og menning við með þessari nýju
útgáfu að verða við ítrekuðum óskum félagsmanna um fjölbreyttari bókakost og að
fá að velja að einhverju leyti sjálfir um bækumar. Einnig vakir fyrir félaginu að
koma útgáfunni á traustari og víðari grundvöll og dreifa með því kostnaði á fleiri
bækur, og þó ekki sízt að hefja menningarsókn er flestir útgefendur draga úr
starfsemi sinni, gefa almenningi aukinn kost góðra bóka á vægu verði þegar lífið
ríður á eins og nú að efla andlegan þroska þjóðarinnar og glæða skilning hennar
á sögu og bókmenntum.
í trausti þess að vinsældir þessa fyrirkomulags aukist eftir því sem menn kynn-
ast því betur, hefur stjóm og félagsráð Máls og menningar ákveðið að fara af stað
með nýjan kjörbókaflokk í ár með sama sniði og á sama verði og í fyrra og með
jafnmörgum bókum.
Stjómin hefur haft allan hug á að gera bókavalið sem fjölbreyttast og að afla
sér sem beztra bóka er um leið séu auðlesnar og skemmtilegar, og hefur sérílagi
verið leitað eftir frumsömdum ritum. Bækumar verða níu talsins og arkatala svip-
uð og í fyrra. Menn geta eins og áður valið um hverjar þrjár, sex eða tekið þær
allar með því að greiða, að félagsgjaldinu (75 kr.) meðtöldu, ýmist kr. 200, 300
eða 400, sem svarar til þess að verð hverrar bókar (er menn hafa keypt þrjár eða
fleiri af bókaflokknum) er til jafnaðar aðeins 33 kr. Ætlazt er til að menn geri
pantanir sínar fyrir 17. júní og greiði að minnsta kosti 50 kr. fyrir fram. Upplagið
verður ekki haft hærra en svarar til pantana, og félagið tekur ekki á sig neina
ábyrgð á að tryggja þeim bókaflokkinn sem ekki hafa pantað hann í tæka tíð. Af
bókaflokknum í fyrra seldust þrjár upp, og em ekki fáanlegar lengur, og af
nokkrum öðmm er upplagið á þrotum.
Bækurnar sem félagsmönnum (og nýjum mönnum sem ganga í Mál og menn-
ingu) gefst kostur á að velja um em þessar:
Timarit Máls og menningar, 1. h. 1953
I