Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 30
20
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
innan sinna vébanda hafði flesta víðsýnustu og frjálslyndustu menn,
sem þjóðin hafði á að skipa, fjarlægðist því meir og meir hinar vest-
rænu þjóðir og fylltist vantrausti á forystumönnum þeirra, sem sungu
frelsinu lof með vörunum en hegðuðu sér eins og ræningjar gagnvart
þeim þjóðum er máttu sín minna. Snerist nú mikill hluti hreyfingarinn-
ar til fjandskapar við þessi ríki, enda voru þau auk Japana aðal-and-
stæðingarnir í sjálfstæðisbaráttu Kínverja, en sú barátta var mikilvæg-
asti liðurinn á stefnuskrá Kuo-min-tang flokksins.
En þá kom Kuo-min-tang flokknum hjálp úr óvæntri átt. í Rússlandi
hafði byltingin sigrað árið 1917, og snerust þá öll stórveldi heimsins til
meiri eða minni fjandskapar gegn Rússaveldi. Forystumaður Rússa,
Lenín, taldi að flokksmönnum hans bæri skylda til að koma á nánu
samstarfi við allar imdirokaðar þjóðir og styrkja þær í frelsisbaráttu
þeirra. Hann taldi Kínverja mjög mikilvæga þjóð vegna menningar
hennar, fólksfjölda og hinna miklu byltingarafla, er þar væru fyrir
hendi. A fyrstu árunum eftir byltinguna breiddist kommúnisminn víða
um lönd. I Kína hafði iðnaðurinn vaxið hröðum skrefum. Erlent fjár-
magn, einkum enskt og japansk, hafði streymt inn í landið og fjölmenn
verkamannastétt hafði myndazt þar. Þar að auki var þar gífurlegur
fjöldi fátækra bænda og menntamanna, en allur þessi múgur var mjög
andvígur áhrifum erlendra þjóða í Kína. Arið 1921 var Kommúnista-
flokkur Kína stofnaður í Shanghai, og hafði hann miðstöð í Suður-
Kína, en þar var líka aðal-athvarf Kuo-min-tang flokksins, og var Kan-
ton höfuðborg hans og aðsetursstaður Sun-Jat-sens. A næstu árum óx
Kommúnistaflokkurinn mjög, en hreyfing Sun-Jat-sens breiddist líka
ört út og tók að nálgast stefnu kommúnista. Sendi Lenín pólitískan ráðu-
naut til Sun-Jat-sens, og kom hann því til leiðar að Kommúnistaflokk-
urinn bræddi sig saman við Kuo-min-tang flokkinn þannig, að Komm-
únistaflokkurinn var leystur upp og gekk sérhver meðlima hans sem
einstaklingur inn í Kuo-min-tang flokkinn, og styrkti það mjög vinstra
arm hans. Var flokkurinn og sniðinn eftir rússneska Kommúnistaflokkn-
um hvað skipulag snerti. Ennfremur sendu Rússar heilan hóp af her-
foringjum til Kanton til að æfa her fyrir flokkinn. Foringi þeirra var
nefndur Blúcher og var einn af mikilhæfustu herforingjum Rússa um
þær mundir. Einn af helztu herforingjum Kuo-min-tang flokksins,
Chiang-Kai-shek, var og sendur til Moskvu til framhaldsnáms í hern-