Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 51

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 51
JÓNAS ÁRNASON: Hugsjón gegn hræðslu Þegar hvítliðarnir komu útúr Alþingishúsinu 30. marz 1949, óð einn þeirra að kornungum pilti sem stóð í mestu spekt þarna nærri, sló hann umsvifalaust í höfuðið svo hann féll við, og lét síðan kylfuhöggin dynja á honum þar sem hann lá í jörðinni, — en í sömu svifum bar þar að annan pilt og þreif hann af hvítliðanum kylfuna, — og þar með var einsog allur hetjumóður hefði alltíeinu runnið af hvítliðanum, hann sneri sér við í skyndi og þaut aftur inní Alþingishúsið með jafnvel enn- þá meiri hraða en hann hafði komið útúr því, enda fékk hann að þessu sinni ágætt „start“, einsog það heitir á íþróttavellinum, því að sá sem hafði afvopnað hann stóðst ekki freistinguna, heldur gerðist hann — um leið og þeir skildu — sekur um sama verknað og kínverska komm- únistastjórnin gagnvart Jóhanni Hannessyni, þegar hún, einsog hann orðaði það á sínu alþýðlega trúboðsmáli, „sparkaði í rassinn á hon- <C um. Hernaðarsaga þessa kylfumanns á Austurvelli á í rauninni við um alla hvítliðana. Þeir ruddust út með miklum hetjuskap og börðu hvað sem fyrir varð, jafnvel konur, börn og gamalmenni, og má raunar segja að hetjuskapur þeirra hafi risið eftir því hærra sem sá var lægri í loft- inu er þeir börðu, enda unnu þeir sín mestu afrek á liggjandi fólki; en hetjuskapurinn entist þeim nákvæmlega jafn lengi og þeir höfðu bar- eflið í höndunum. Væri kylfan tekin af þeim, stóðu þeir eftir skjálfandi, og mundu sennilega hafa farið að skæla, ef hugur þeirra hefði ekki ver- ið svo mjög við það bundinn að komast aftur í skjól innan veggja Al- þingishússins. Enda sagði Ólafur Thors í þingræðu daginn eftir:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.