Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 81
AFBROT UNGLINGA — ORSAKIR OG MEÐFERÐ
71
þeirra. Það eru þá einkum þrír flokkar aðgerða, sem koma til greina.
1) Breyting á nánasta umhveríi barnsnis: Hún er fyrst og fremst fólg-
in í því að gefa foreldrum og fósturforeldrum barnsins uppeldisfræði-
legar ráðleggingar og hjálpa þeim að finna þau uppeldislegu mistök,
sem valda hegðun barnsins að nokkru eða öllu leyti. Þetta ber oft ár-
angur sé um skynsama og andlega heilbrigða foreldra að ræða. Margs
konar mistök í uppeldi má lagfæra á þennan hátt, svo sem eftirlitsleysi
eða of lítinn aga, of strangan aga eða harðstjórn, ósamkomulag í
fjölskyldunni, óljósa andúð foreldra á barninu og margt fleira, scm
getur valdið truflunum á hegðun þess.
Aðlögun bamsins í skólanum ber að gefa gaum og aðlögun á vinnu-
stað, sé um ungling að ræða. Raunir barnanna má oft rekja til slæmr-
ar aðlögunar í skólanum, lítillar námsgetu eða lítils námsárangurs, sem
kemur af vanmati á eigin getu eða röngum starfsaðferðum við nám,
erfiðleikum við að nema vissar námsgreinar, andúð barnsins á kennara
sínum, ósamkomulagi við bekkjarfélaga o. s. frv. Þessa ágalla er oft
hægt að lagfæra í samráði við kennara og skólastjóra.
Þá ber það oft góðan árangur að leiðbeina barninu við einhverjar
tómstundaiðkanir eða fá það til að starfa í æskulýðsfélögum. í þessu
sambandi skal ég geta þess, að ég hef spurt öll afbrotabörn, sem ég hcf
athugað, hvort þau væru starfandi í einhverjum æskulýðsfélagsskap,
svo sem bindindisfélögum eða skátafélögum, en ég hef aldrei fengið já-
kvætt svar við þeirri spurningu.
2) Sálrænar lækningaraðferðir: í sumum tilfellum geta nokkur sam-
töl sálfræðings við barnið komið að notum. Hann gelur hjálpað því
til að finna orsakir hegðunar sinnar, vakið áhuga þess á hollum við-
fangsefnum, uppgötvað sálrænar truflanir, sem valda erfiðleikum, og
unglingum getur hann leiðbeint um stöðuval þeirra. Gallar þessara að-
ferða eru þó þeir, að þær eru mjög tímafrekar og því dýrar og hæfa
ekki heldur nærri öllum tegundum afbrotabarna.
3) Flutningur barnsins í nýtt umhverfi er úrræði, sem kemur lil
greina, sé ógerlegt að breyta nánasta umhverfi þess eða hafa áhrif á
hegðun þess á annan hátt. Þetta ber þó aðeins að gera að vel athuguðu
máli. Ef nokkrar líkur eiga að vera til þess, að hegðunargallar barns
lagist við það að taka það af heimili sínu og flytja það á nýtt heimili,
þarf fyrst og fremst að ganga úr skugga um, að aðalorsök eða orsakir