Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 54
44
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
tala um það morguninn eftir sem ofbeldisárás af ykkar hálfu. Og þegar
skotið verður á ykkur úr vélbyssum, þá munu sömu málgögn lýsa því
sem hinni þörfustu lexíu í lýðræði ykkur til handa.
Og víst má til sanns vegar færa, að þetta verði gert til að tryggj a ör-
yggi og lýðræði. Það verður gert til að tryggja það öryggi yfirstéttar-
innar sem felst í því að hún geti haldið völdunum áfram, og velt sér
í óhófi, þegar þar er komið þróuninni, að henni þýðir ekki lengur að
berjast fyrir þeim á málefnalegum grundvelli. Og auðvitað verður þetta
hin dyggilegasta framkvæmd á því, sem yfirstéttin hefur alltaf átt við
er hún talaði um lýðræði. Það lýðræði er, þegar bezt lætur, ekkert
annað en blekkingamátturinn sem auðmagnið tryggir henni með yfir-
ráðum yfir voldugustu áróðursmálgögnunum. Og hallist eitthvað á fyr-
ir yfirstéttinni, fer þetta lýðræði hennar að opinberast æ meir í kylfu-
höggum. A síðasta stigi er það orðið vélbyssuskothríð. — Lýðræði ís-
lenzku yfirstéttarinnar virðist nú vera að nálgast það stig.
Já, yfirstéttin er hrædd. Hún veit að nú er komin ykkar öld, verka-
manna og annars vinnandi fólks; þið eruð að rísa upp ásamt bræðr-
um ykkar í nýlendunum og annarsstaðar þar sem framleiðandi verð-
mætanna býr við kúgun og fátækt, eruð að rísa upp til að taka í ykkar
hendur öll hin miklu og dásamlegu gæði þessa hnattar okkar, — yfir-
stéttin sér ykkur ganga til baráttunnar með kyndil hugsjónarinnar á
lofti, með hugrekkið í hjartanu, og hún veit að það kemur ekki til mála
að hún sigri í þeirri baráttu. En hún vonast til að geta frestað eitthvað
ósigri sínum með því að láta senda sér hugrekkið í gervi hlaðinnar
byssu frá Bandaríkjunum.
Og hver verður svo valinn í þennan her? Því er fljótsvarað. Það
verður sú manntegund sem stóð skjálfandi á Austurvelli, þegar burtu
var kylfan úr hendi hennar. Það verða hin hugsjónalausu afkvæmi yf-
irstéttarinnar og þý hennar úr öðrum stéttum. Það verða þeir ungir
menn á íslandi, sem ekki hafa getað fundið samstöðu með hinum
vopnlausu fylkingum fólksins, hinum sigrandi fylkingum, — þeir hinir
hræddu, þeir hinir vesölu, allir þeir sem þekkja ekki hugrekkið nema
sem vopn í hendi. Þeim nægði ekki það hugrekki sem yfirstéttin lét búa
til handa þeim á innlendu smíðaverkstæði. Nú á að gera nýja tilraun
með þá. Nú á að fá handa þeim nýtt og meira hugrekki, hlaðna byssu,
Made in U.S.A. Stofnun innlends hers verður stórvirkjun ragmennsk-