Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 114

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Blaðsíða 114
104 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR boð'skap að flytja og er á sinn hátt vel fram sett. Sá hlægilegi orðheng- ilsháttur, sem virðist oft þjá báða málsaðila í deilum urn þessi tvö, stundum náskyldu, stundum fjarskyldu listform, verður ekki tekinn til umræðu hér, en upphaf hans má kannski að einhverju leyti rekja til þeirra, sem af „sjúklegu hatri“ hafa dæmt „hið hefðbundna ljóðform“ dautt. Um slíkar firrur er ekki rétt að eyða mörgum orðum, aðeins drepa á, að sé eitthvað verulega gott í því hefðbundna, þá hlýtur það að eiga sinn tilverurétt og oftast tilverumátt. Órímuð ljóð og lausrímuð eru líka gömul form, sem hafa átt sína hefð í ýmsum löndum, á ýmsum tímum. 011 sólarmerki benda til, að verulegra breytinga sé að vænta í íslenzkri ljóðagerð. Ef t. d. ekki þykir ástæða til að vernda stuðla og höfuðstafi, þá má gera ráð fyrir að þeir verði að miklu leyti horfnir úr íslenzkum ljóðum sem ort verða um næstu aldamót. Að því hljóta sér- staklega að stuðla ört vaxandi menningartengsl við aðrar þjóðir, sem ekki nota þetta bragform. En við getum gert mikið til að sporna við þessu, og ég held, að við höfum ástæðu til að gera það. En — sem sagt — þetta er þó ekki aðalatriðið, heldur hitt — þær lífsskoðanir, sem túlkaðar eru, og hvort það er gert þannig að áhrif þeirra nái til fólksins. Því að fyrir hverja eru skáldin að yrkja, ef ekki fyrir fólkið? Um þetta stendur deilan og allt annað eru aukaatriði. Hafa ekki flest hinna beztu skálda verið nokkurs konar andlegir leið- togar þjóða sinna, og því skyldu þau ekki halda áfram að vera það í einhverjum skilningi? En maður, sem velur sér svo göfugt hlutverk, má sízt af öllu stilla sér skör ofar öllum öðrum — hann má ekki reyna að staðsetja djúp hálf-dulspekilegra draumóra milli sín og fjöldans. Hann verður helzt að tala til fólksins eins og einn úr hópi þess, og honum er hollt að gera sér ljóst, að milli hans og þroskaðasta hluta alþýðunnar er raunar enginn mismunur annar en sú faglega þekking og hæfileikar, sem hann hefur tamið sér sem skáld og andlegur leiðsögumaður. Það hættulegasta allri list er að reyna að umvefja hana svikinni gloríu dul- rænna kenda, sem þegar skást lætur er aðeins persónulegir og öðrum óviðkomandi sálsýkisórar, en þegar verst lætur svívirðileg blekking. S. D. virðist sums staðar í greininni gera sér vel ljóst, að skáldi ber að leggja eitthvað jákvætt til lífsbaráttu mannsins. Hvergi sést þetta þó skýrar en í tilvitnun í ágæta ritgerð Nordahls Grieg um hlutverk leik- listar. En annars staðar í sömu grein kemst S. D. svo að orði, að nútíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.