Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 79
AFBROT UNGLINGA — ORSAKIR OG MEÐFERÐ 69 afsökun að kenna öðrum um sínar eigin skyssur. Þó mun nær sanni, að illur félagsskapur sé nær aldrei frumorsök afbrotahneigðar, þótt hann geti stundum stuðlað að því að auka hana. En ávallt hljóta einhverjar dýpri orsakir að liggja til þess, að viss drengur velur sér afbrotadreng að félaga, fremur öðrum, sem heiðarlegur er. Slæmur félagsskapur er því oftar afleiðing en orsök afbrotahneigðar. Kvikmyndir hafa oft verið nefndar, sem ein af hugsanlegum orsökum afbrota. Er það þá fyrst og fremst ein tegund þeirra, glæpamyndir, sem gætu haft áhrif í þá átt að stuðla að afbrotum. Þetta hefur allmikið ver- ið rannsakað og mun niðurstaða slíkra rannsókna í stuttu máli vera sú, að unglingar sæki sjaldan beinar fyrirmyndir að afbrotum sínum í kvikmyndir, og einstakar myndir séu yfirleitt ekki bein orsök ein- stakra afbrota. Hins vegar mun langvarandi aðsókn unglinga að glæpa- myndum stuðla að því að auka afbrotahneigð þeirra með því að breyta smátt og smátt viðhorfi þeirra til afbrota og afbrotamanna. í augum þeirra, sem sjá oft glæpamyndir, verða glæpirnir algengir hversdags- legir hlutir, sem lítið er athugavert við. í flestum glæpamyndum eru glæpamenn líka sýndir sem skrautbúnar hetjur, sem eftirsóknarvert er að líkjast, en ekki eins og þeir eru í raun og veru, og eykur það áhrifa- mátt þeirra á unglinga þá, sem illa gengur að þekkja muninn á réttu og röngu. Án efa eiga því glæpamyndir nokkurn þátt í því að sljóvga sið- gæðishugmyndir æskulýðsins. Sálsýki getur stundum verið orsök afbrota. Koma þar margar tegundir sálsýki til greina, og skal það ekki rakið nánar hér. Þær orsakir eru ekki mjög algengar, og er það aðeins á færi sérfræðinga að rannsaka í hverju tilfelli, hvern þátt sálsýkin á í afbrotinu. Hér skal þó nefnt atriði, sem skylt er sálsýkinni, það er eiturlyfja- notkun. Hér á landi er naumast um aðra eiturlyfjanotkun að ræða meðal unglinga en áfengisneyzlu, en margar þjóðir verða að berjast gegn notkun annarra eitur- eða deyfilyfja. Áfengisnotkun unglinga hér á landi á mikinn þátt í að auka afbrot þeirra, og það er á tvennan hátt, sem það gerist. í fyrsta lagi er vín dýr vara, og unglingar, sem hafa vanið sig á það eða halda að það sé fínt að neyta þess, þurfa að afla sér mikils fjár til að geta veitt sér það svo nokkru nemi. Helzti möguleikinn er þá að stela eða ræna fjármun- unum til að veita sér hinn eftirsótta drykk, enda sýnir reynslan, að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.