Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 83

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 83
-AFBROT UNGLINGA — ORSAKIR OG MEÐFERÐ 73 Athuganir hafa enn fremur sýnt, að gott fósturheimili er ekki jafnt við hæfi hvaða barns sem er. Þótt ákveðið barn, sem við getum kallað A, hafi engin not af að vera á heimili því, sem það er sett á, getur ann- að barn, sem við getum kallað B, haft gott af dvöl á þessu sama heim- ili. A getur þó farnazt vel á einhverju öðru heimili, sem er betur við hæfi þess. Heimilið og barnið þurfa með öðrum orðum að hæfa hvort öðru. Með nákvæmri rannsókn, sem gerð er bæði á barninu og heimil- inu fyrirfram, er hægt að komast langt í því að velja viðeigandi heimili fyrir hvert barn. Nú hefur verið drepið á nokkuð af því, sem hægt er að gera til að hjálpa afbrotaunglingum. Allsstaðar þar, sem slíkar ráðstafanir hafa verið gerðar, hafa þær borið jákvæðan árangur, stuðlað að því að minnka hóp afbrotaunglinga, og oft hindrað, að afbrotaunglingurinn yrði síðar að glæpamanni, en það mun vera sannreynt, að mjög stór hluti fullorðinna afbrotamanna hafa áður verið afbrotaunglingar. Aðferðir þær, sem hér hefur verið lýst, duga oft, en við verðum þó að viðurkenna, að vissum hluta unglinga er ekki hægt að hjálpa með neinum af þeim aðferðum, sem enn eru þekktar eða tiltök er að nota. Sá hópur er þó mjög fámennur, og það er mikilvægt að geta snemma greint þá, sem vonlausir eru, frá hinum, sem hægt er að hjálpa með uppeldisfræðilegum aðferðum, svo að hægt sé að stuðla að því að gera þá fyrrnefndu þjóðfélaginu óskaðlega á einhvern annan hátt. V Nú mun ef til vill einhver spyrja, hvað sé hægt að gera til að hindra það, að nokkur börn verði afbrotabörn. Margt af því, sem hægt væri að gera, má ráða af kaflanum um or- sakir afbrota. Séu þessar orsakir fjarlægðar að einhverju leyti, mun afbrotabörnum einnig fækka. í þessari grein eru engin tök á því að ræða aðferðir þær, sem hægt væri að beita, til að nema burt helztu or- sakir afbrota, því að til þess að það mætti koma að nokkru gagni yrði að ræða fjöldamörg uppeldisfræðileg og félagsleg vandamál ýtarlega. Að síðustu vildi ég þó henda uppalendum á eitt mikilvægt ráð, sem allir geta hagnýtt en oft er þó vanrækt. Ráðið er þetta: Sjáið börnum og unglingum alltaf fyrir nœgum hollum verkefnum við þeirra hcefi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.