Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Side 88

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Side 88
78 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR þar til ekki var annað eftir en ráðstjórnarfulltrúarnir. Þegar að Vínar- ráðstefnunni kom, létu þeir einnig greipar sópa um gestina. Sjáið þið til, það er ekki hægt að þverfóta fyrir ráðstjórnarlýð. Hér er minn fyrsti vitisburður: Svo er mál með vexti, að þeir menn, sem ég hitti í Varsjá, voru ef til vill róttækir að nafninu til, en þeir voru sannir menn, sem vissu hvað þeir vildu, lifandi menn, ekki menn sem hafðir eru að handbendi. Nú, en hvað sem öllu þessu líður, þá var vinum mínum vel kunnugt, að ég var ekki leigupenni — og þeir þekktu mig. Hvað sögðu þeir þá við mig? Að ég mundi verða einn. Að ég yrði ekki frjáls. Að ég yrði blekktur. Eg segi ykkur þetta vegna þess, að ég ímynda mér að aðrir hafi orð- ið fyrir sömu vinahótum, en hefðu ef til vill komið að öðrum kosti. Þeir sögðu við mig: Þarna verða róttækir að nafninu til, falskir erkibiskupar, og síðan þú. Og hvers verður þú megnugur gegn öllum? Þeir láta þig skrifa undir hvað sem er, og ef þú nú skrifar samt ekki undir, hversu einn verður þú ekki. Þú verður aldrei annað en eitt at- kvæði gegn samhljóða heild. Ég sagði: Og hvað þá um tryggingarnar, sem okkur eru gefnar. Og þeir fóru að hlæja. Tryggingarnar? Þær voru í fyrsta lagi of fagrar, þær gátu ekki geng- ið. Það er talað um að taka tillit til allra skoðana án þess að grípa til meirihlutaaðstöðunnar. Það er allt of fallegt. Og okkar á milli sagt, ætlið þér að bera fram spurnir varðandi stjórn- arháttu innan Ráðstjórnarríkjanna og Austur-Evrópuríkjanna? Ég svaraði því neitandi, kvaðst ekki sjá ástæðu til þess. A meðal okk- ar er viss hópur manna, sem heldur að eina sambandið, sem við getum haft við Ráðstjórnarríkin, sé að gagnrýna við fulltrúa þeirra innan- landsástandið í þessum ríkjum. Ég álít, að ef menn vilja finna leiðir til að sætta hin tvö miklu efnahags- og stjórnarkerfi nútímans, þá sé það happadrýgst að leita þess, sem sameinar en ekki hins, sem sundrar, og blanda sér ekki í stjórnarfar landanna. Já, segja þeir. En það sem varðar mestu: Yður verður ekki leyft að tala.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.