Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 121
UMSAGNIR UM BÆKUR 111 söguritunar sem smásagnagerðar. En tíminn leiðir það í ljós. Ekki er hægt að ljúka ummælum um bókina, án þess að minnast þeirrar gleði- legu staðreyndar, að hér hefur íslenzkt útgáfufyrirtæki í fyrsta skipti lagt í það að gefa út smásagnasafn í flokki bóka, sem ætlazt er til, að veki athygli og eiga það líka skilið. Þessi nýbreytni er sann- arlega góðra gjalda verð, enda vonandi, að hér þurfi ekki að láta staðar numið vegna tómlyndis lesenda. Furðulegt má heita, ef ekki er hægt að kenna íslenzkri alþýðu að kaupa og lesa smásögur, jafn tilvalið lestrarefni og þær einatt eru. Sannleikurinn er þó sá, að útgáfa slíkra sagna hefur verið fyrirfram dauðadæmt uppátæki fjárhagslega, í flestum tilfell- um. Þessa hafa ýmsir hinna yngri höf- unda okkar orðið að gjalda, með dapur- legri afleiðingum en flestum er kunnugt. Vonandi er því, að útkoma þessarar bók- ar í fyrsta bókaflokki Máls og menning- ar marki spor í áttina til breytingar á því ástandi. Þá væri ekki til einskis af stað farið. Elías Mar. Einar Benediktsson: Laust mól I—II. Steingrímur J. Þorsteinsson bjó til prentunar. Útgefandi: ísafoldarprent- smiðja h.f. Reykjavík 1952. Einn mestur fengur fyrir jólin var að fá útgáfu á Lausu máli eftir Einar Bene- diktsson, ásamt æviágripi hans eftir Steingrím J. Þorsteinsson, prófessor. Áð- ur er komin hjá sama forlagi heildarút- gáfa af ljóðum skáldsins, svo að nú gefst mönnum yfirsýn um starf hans og æviferil. I Laust mál eru teknar sögur Einars og svipmyndir, og ýtarlegt úrval af rit- gerðum hans og blaðagreinum, og bók- inni fylgir ritgerðatal Einars. Lausu máli er skipt í kafla sem hér segir: Sög- ur og svipmyndir, Skáld og þjóSmenntir, Saga og þjóSarframi, ÞjóSmál og fram- kvœmdir, HugleiSingar og heimspeki. Margt er þar sem menn hafa ekki haft greiðan aðgang að áður eða legið hefur dreift, en ýmsu þó sleppt sem söknuður er að, og í raun réttri fer svo að loknum lestri úrvalsins og ævisögunnar að mann þyrstir því meira að fá að lesa allt sem eftir Einar liggur, en það er ef til vill bezt sönnun fyrir að útgáfan hafi vel tek- izt. Athyglisverðastar nú um stundir (og verða raunar ætíð til að bregða Ijósi á skáldið og persónu hans) eru þjóðmála- greinar Einars þær er hér birtast, til að mynda Starfsfé fyrir ísland og Þrjár enskar skýrslur um framfaraeflingu og gróSavegi á Islandi, samdar handa fé- lagsmönnum í British North-Western Syndicate, einu af hlutafélögum þeim er Einar stofnaði til stórframkvæmda á Islandi og tókst með krafti mælsku sinn- ar að fá kaupsýslumenn erlendis til að leggja fjármagn í. Æviágrip Einars eftir Steingrím sem látleysislega er skeytt aftan við Laust mál er í rauninni heil bók, eða yfir 220 síður. Er auðsýnilega dregið til hennar mikið efni sem hlýtur að hafa kostað óhemju starf, bæði að viða að sér úr ýmsum áttum, eftir rituðum og munn- legum heimildum, og ekki síður að vinna eins vel úr og hér er gert. Ævisagan er vel rituð, ljós og skilmerkileg, varpað Ijósi jöfnum höndum á skáldið og mann- inn, þrædd af góðri smekkvísi vandfarin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.