Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 111
telst mér til, að meir en þriðjnngur a{ efnismagni hennar sé um fsland og íslenzka menn fyrr og síðar, og svipuðu máli mun gegna um sumt annað af hans frumkveðnu ljóðabókum, en þær eru alls orðnar sjö á fimmtán árum, auk þýðinganna. Hitt er þó meira um vert, frá mínu sjónarmiði, af hve fölskvalausum hug til lands vors þetta allt er gert, bæði saga Stefáns, þýddu kvæðin og þau frumortu. Kvæðin í þessari bók Orglands hafa sömu kosti og fyrri ljóð hans og standa þeim síður en svo að baki. Ef nokkru mun- ar, finnst mér kraftur skáldsins og hagleik- ur aukast við hverja bók, sem hann gefur út. Og ekki minnist ég þess að hafa áður lesið svo viðamikil kvæði eftir Orgland sem Til Islands og Galdra-Loftur í Farvegum. 011 eru kvæðin ort á kjarngóðri nýnorsku, hreytileg að uppistöðu, ívafi og blæ, sem þó er alltaf með persónulegum yl. Til dæmis um íslenzkan svip kvæðanna og um leið fjölbreytni skulu fyrst og fremst nefnd fáein þeirra, sem eru um land vort og þjóð: Til íslands, Galdra-Loftur (bæði löng og kynngi mögnuð), Sigling inn Eyja- fjörð, Hornbjarg, Stóri-Geysir, fslenzkur skipstjóri, Mývatn, Dimmuborgir, Kveðja til íslands og Fjalldrottning, öll rík af að- dáun á því, sem íslenzkt er og norrænt yfirleitt. Onnur yrkisefni, tekin til meðferðar af skáldinu, eru flest norsk eða færeysk. Yfir bókinni er því víðast norrænt heiði, ýmist hlýtt og bjart eða þrungið seltu frá sjó og frosti vetrar. Einstök þeirra mættu þó kall- ast sammannleg, þannig að óljós virðist uppruninn. Svo er t. a. m. um eitt bezta kvæðið, Sólarsöng (við klausturhlið). Þar segir frá ungri stúlku, sem ætlar að fara í klaustur, og aðdáanda hennar, söknuði hans og þrá. Honum er kvöl að meyjar- missinum í klaustrið, sem von er að. Svo Umsagnir um bœkur mælir skáldið m. a. fyrir munn elskandans til hennar, sem Guði hefur líf sitt helgað: fíulla skire, Gulla blome, i din vðrdag sprungen ut! Kor din ange fyller romet, kor din song nár inst i hjartet, sá det svimrar for ein gut. Du er sytten ár i sumar, du vert atten neste vár. Kor min dag vil verta tomar' nár den skiraste av blomar attom klosterporten stár. Þe:ta er aðeins fyrsta vísa kvæðisins af sjö, en það er alit til enda gætt sömu ást og aðdáun. Ég sagði, að kvæðið virtist sammannlegt. En gæti það ekki táknað viðhorf höfundar- ins til íslands, sem er horfið honum í fjarskann líkt og klausturmærin sveininum inn fyrir múrinn, og gæði það meyjar- eða konumynd, svo sem ófá skáld hafa gert á undan honum? Sjá t. a. m. ljóðið Fjall- drottningu í bókar lok, sem er náskylt þessu. Um þetta skal þó ekkert fullyrt. En kvæðið um Gullu hefur þau einkenni góðs skáldskapar að kveikja í lesandanum sömu hughrif og það er innblásið af. Og þessi fagra kvenlýsing er a. m. k. ósvikin og norræn. Snarasti þáttur ljóða Orglands er ástin til norrænunnar og til íslands alveg sér- staklega. Hann saknar þess eins og ást- rneyjar, dáist að fomri frægð þess og feg- urð, gleðst yfir heiðri þess og hamingju í nútíð, dreymir um glæsta framtíð þess. Fyrir það, sem nú hefur verið sagt, skal ívari Orgland af alhug þakkað og honum óskað til hamingju með vöxt og viðgang á skáldskaparbraut hans. Þóroddur GuSmundsson. 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.