Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Blaðsíða 12

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Blaðsíða 12
Peter Hallberg Listin að Ijúka sögu Minnisgreinar um skáldskap Halldórs Laxness Síðari hluti Norðanstúlkan og blómin ófeigu Með Atómstöðinni (1948) er stigið stórt skref frá löngu liðnum tíma beint inn í nútímann. Uppistaða bókarinnar er nöpur ádeila á íslenska stjórnmála- menn í lok síðari heimsstyrjaldar. „Selja land, grafa bein“ er kaldhæðið við- lag hennar. Það er norðanstúlkan Ugla sem segir frá allan tímann. Viðburðaríkt ár í sögu þjóðarinnar líður hjá, einsog það orkar á hug hennar. Um leið verður Atómstöðin saga hennar sem einstaklings; enda er heitið á leikritsgerð verksins einmitt Norðanstúlkan (1972). Og það er sú saga, persónuleg reynsla Uglu, sem verður að lokum einna eftirminnilegust. I síðasta kafla bókarinnar gengur hún framhjá dómkirkjunni og verður þar vitni að hágöfugri jarðarför, nátengdri vélabrögðum og svikum stjórn- málamanna sem eru skotspónn höfundarins. Hópur götulýðs gerir hróp að pípuhöttunum, þar sem stórhöfðingjar landsins ganga undir forkunnarfag- urri kistu. Kvæði atómskáldsins um Óla fígúru er sönglað: „land vildi hann selja / bein vildi hann grafa“. Stúlkan snýr sér undan þessum sjónleik, eða skrípaleik: „Eg svipaðist um eftir skjótustu undankomuleið af þessu torgi, þrýsti blómvendinum mínum fastara að mér og tók til fótanna. Hvers virði hefði mér þótt að lifa ef ekki hefðu verið þessi blóm?“ Hvað merkja þessi sögulok, þessi blóm sem virðast bjarga trú hennar á lífið? Þau eru gjöf frá organistanum, kennara hennar í organleik, sem hún kom að norðan til að læra í höfuðstaðnum. En framar öllu hefur hann haft djúp áhrif á þessa sveitastúlku með því að vera einfaldlega sá maður sem hann er: vitur, mannúðlegur og umburðarlyndur. Hann heldur í öllu um- róti samtímans, „atómstöðvarinnar", rólegu jafnvægi sínu, einhvern veginn hafinn yfir þras daglegs lífs. Samspili hans og norðanstúlkunnar er lýst í fáum dráttum, en af slíkri list að hún dýpkar mynd þeirra beggja. Þegar Ugla heimsækir organistann í síðasta skipti, nýkomin úr Norður- landsferð til foreldra sinna, er hún búin að sofa nóttina áður hjá Búa Arland, 138
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.