Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Side 92

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Side 92
Tímarit Máls og menningar aðkomumanna og um nýjan innri styrk. Yfirleitt hafa skáldverk um þessi efni verið fyrirsjáanleg að því er varðar atburðarás og persónusköpunin í lágmarki. Nýlega hefur Molly Keane blásið fersku og frjósömu lífi í efnivið- inn með mjög persónulegri frásögn af þvílíku hruni, saminni í hnökra- lausum stíl og læsilegum skemmtitóni. En áhrifamesti höfundur í þessari grein hefur verið Jennifer Johnston, sem fjallað hefur um efnið með táknrænum hætti. Hún hefur dregið upp skýra og lifandi mynd af Irlandi samtímans, en efnismeðferðin vísar langt útfyrir írsku spurninguna. Verk hennar eru knöpp og beinskeytt og skáldsögurnar taka á sig svipmót dæmisagna. Styrkur hennar er í því fólginn að gera þessar dæmisögur trúanlegar í nöktum og ófegruðum lýsingum á veruleikanum. „How Many Miles to Babylon“ (1974) er sennilega besta verk hennar. Meginstefið er vinátta ensk-írsks lögerfingja og drengs úr næsta þorpi með fyrri heimsstyrjöld í baksýn. Dregin er upp heillandi mynd af stéttamun og því sem mennirnir eiga sameiginlegt þegar allt kemur til alls. Styrkur Jennifer Johnstons varpar líka ljósi á annað auðkenni írskrar sagnagerðar, vanmátt hennar eða tregðu til að fást við Irland samtímans, og raunar veröld samtímans. Einnig að þessu leyti hafa þeir Joyce og Beckett ekki getað knúið samlanda sína til að læra af fordæminu. Fortíðin virðist vera meira freistandi og sennilega ekki eins kröfuhörð, nema farið sé að dæmi Banvilles og hún notuð einsog spegill eða skurðhnífur til að rannsaka samtímann. Brian Moore kemst í stórum dráttum undan þessum hömlum. I skáldsögunni „The Lonely Passion of Judith Hearne" (1955) kannar hann Belfast í háðsku ljósi kaþólskra viðhorfa í borginni. Hann skrifar með fagmannlegu áreynsluleysi Trevors, setur söguefnið í fastmótað kerfi og fer ekki í launkofa með snyrtilega hagræðingu allra þráða. En í verkum hans er samt annað og meira, semsé djúpt og ósvikið innsæi í þau myrku öfl sem eru undirrót ástandsins í Ulster. Skáldsagan „The Revolution Script“ fjallar um atburðina í Quebec 1970, þegar Þjóðfrelsisfylking Quebecs rændi þeim Cross og Laporte. Þessi samtímafrásögn er í senn könnun á aðstæðum franskra kaþólikka í Quebec og írskra kaþólikka í Ulster, sem eru nálega samkynja. Einn þeirra ungu höfunda sem tóku sér fyrir hendur að kafa til botns í djúpum samtímans á Irlandi er Neil Jordan, en árangur hans á ritvellinum hefur fallið í skugga velgengninnar í kvikmyndaheiminum, þarsem hann hefur starfað að gerð kvikmynda undir leiðsögn Johns Boormans. Fyrsta bók Jordans var smásagnasafnið „Night in Tunisia”, sem ruddist djarflega framá sviðið í lok áttunda áratugarins og fjallaði meðal annars um fíknilyf, samkynhneigð, firringu ungu kynslóðarinnar frá kynslóð feðranna, en lagði 218
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.