Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 95
Að kunna skil á sínu skaz-i
son, fékk hana í hendur um haustið, þá á leiðinni til Finnlands með við-
komu í Kaupmannahöfn.
Við settumst út á krá sem heitir Enghave-kro og þar rétti ég honum hand-
ritið yfir borðið eftir að hafa sagt honum að búa sig undir ósköpin með því
að styrkja sig á snapsi. Lestu nú fyrstu setninguna, sagði ég og ef að þér
fellur hún ekki, þá skaltu rétta mér bókina aftur og svo ræðum við það ekki
frekar.
Jóhann opnaði handritið og las fyrstu setninguna, lokaði handritinu aftur
og lét það frá sér á borðið og fór inn á jakkann sinn og tók upp veskið sitt og
opnaði og taldi þrjá þúsundkróna seðla danska upp úr því og lét á borðið og
ýtti til mín. Hvað er nú þetta? spurði ég. Þetta er fyrir fyrstu setninguna,
sagði Jóhann. Það er svona vel sem mér líkar hún.
Það var á Enghave-kro sem Jóhann fékk þá hugmynd að Olafur heitinn
Jónsson bókmenntafræðingur læsi handritið í gegn, og gerði tillögur um
það sem betur mætti fara, en ég höfundurinn, skrifaði niður nokkuð af þeim
atriðum sem ég hafði áhyggjur af. Eg hef haldið þessum bréfaskriftum til
haga og fylgir hér á eftir úrdráttur úr þeim.
Gælunafnið
Athugasemdir
1. Söguna segir 16 ára drengur. Frásagnarmátinn á að vera skaz. Tekst þetta
eða er ósamræmi í orðavali?
2. Ég er í miklum vafa um sambandið Stebbi/Helga. Yrði sagan ef til vill
sterkari ef Stefán stæði algjörlega einn og samband hans við systurina
væri nokkurnveginn „norrnal" þ. e. a. s. ekki sifjaspell. Láta Stefán þess í
stað erfiða við að missa sveindóminn?
3. Er bókin episódísk og ef svo er, er það þá galli?
4. Er bókin of löng og ef svo er, hvar þarf að skera niður? Hvar eru veikir
kaflar?
5. Ég hef reynt að forðast allar gildrur hvað varðar sögupersónuna Tomma
Tarzan og Stefán margsegir að hann vilji ekkert með Tomma hafa etc.
(mesta hættan hér er að mínum dómi væmni). Geri ég þetta á kostnað
þess að lesandinn verður ósnortinn af sjálfsmorði hans í sögulok. Eg held
ekki. (Eg vil eftirláta lesendum sem mest hér.) Hvað finnst ykkur?
6. Er kafli 28 of langur. Eg er ekki viss.
221