Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 132

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 132
Tímarit Máls og menningar finnsluvert og gerir frásögnina sundur- lausa og ruglingslega, því oft er talað um sömu hluti aftur og aftur, og langdregna af því allt er tekið með. Stundum eru líka beinar tilvitnanir alltof langar (23 — 5, 51—3, 224 — 5, 236 — 7). Eiginlega er mesta furða hvað Jóni tekst að gera lipr- an og þægilegan texta, því bókin er næst- um aldrei leiðinleg. Til frekari málsbóta verður síðan að geta þess að honum eru naumast aðrar leiðir færar úrþví hann á annað borð tekur eitt mál fyrir í einu í stað þess að gera ákveðnu fyrirbæri eða atriði, konum fyrir rétti, vandleg og sagnfræðileg skil. Og er þá komið að meðferð heimilda. Jón fylgir þeim grannt, en vandar sig ekki jafnmikið þegar hann vitnar tii þeirra. Séu yfirheyrslur í málum Rann- veigar Sigurðardóttur og Signýjar Frið- riksdóttur frá árinu 1844 bornar saman við tilvitnanir Jóns, sem hann margsegir að séu orðréttar, kemur í ljós að þær eru það ekki alltaf.4 Ekki er illa til fundið hjá Jóni að búa til lítil leikrit úr yfir- heyrslum og setja „spurði sýslumaður“ og „svaraði stúlkan" í stað einhæfra „spurning" og „svar“ dómabóka. Hins vegar er meinlega mikið um lesvillur. Allt ber þess merki að Jón hafi látið sér nægja að taka nótur við fyrsta lestur dómabóka og ekki haft fyrir því sem á fagmáli heitir að „tékka á tilvitnunum", það er að segja lesa saman handrit og afskrift fyrir prentun. „Dautt“ verður „dáið“, „óréleg meðhöndlun“ verður „óróleg", „sæir“ að „gætir“ og „gæti“ að „geti“. Stundum er nokkrum orðum sleppt, „merki til frekari samfara" breyt- ist í „frekari merki til samfara" og „áð- ur“ í „síðan“. „Mér var synd“ breytist í „það var synd“ og „varstu send“ í „fórstu samt“. Svona kæruleysi er ófyrirgefanlegt, jafnvel þótt flestar vill- urnar séu lítilfjörlegar. Heimildaskráin gerir loks illt verra: þrettán bókum er raðað upp í stafrófsröð titla og án út- gáfuárs, og um skjölin segir: „Dóma- bækur, bréfabækur og sýsluskjöl við- komandi sýslna. Dómsskjöl í héraði og landsyfirrétti. Prestsþjónustubækur, sóknarmannatöl og manntöl." Þetta er engum til gagns og alveg eins gott að sleppa því. f>að verða að fylgja nákvæm- ari upplýsingar svo hægt sé að finna skjöl og bækur. Þess er ekki einu sinni getið að gögnin sé að finna í Þjóðskjala- safni í Reykjavík. Sögur Jóns af dulsmálum eru með því merkasta sem gert hefur verið á sviði þess sem nefnt er þjóðlegur fróðleikur og vandséð hvort hægt verði að bæta um betur á sömu forsendum. En Jón verður að vara sig. Hann steytir á skerjum og gæti strandað í næstu bók sjái hann ekki að sér og hugsi sumt upp á nýtt. Már Jónsson Tilvitnanir 1. Þjóðskjalasafn. Sýsluskjalasafn. Strandasýsla V-2: Dómabók 1822- 45 179. 2. Landsyfirréttardómar og hæstaréttar- dómar 1802 — 73 VI. Reykjavík 1946—50 1—4; Þjskjs. Strandasýsla V-3: Dómabók 1845—50 2—14. 3. Sjá cand. mag.-ritgerð mína við Há- skóla Islands, Dulsmál á íslandi 1600-1920, Reykjavík 1985 63-91. 4. Þjskjs. ísafjarðarsýsla IV-9: Dóma- bók 1841-47 138-51 og 205-15; Strandasýsla V-2: Dómabók 1822- 45 174—92 og V-3: Dómabók 1845 — 50 2-14. 258
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.