Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Blaðsíða 21
ríkisstjóminni fyrir að vernda mig. Ég
vona að slík vernd standi hverjum borgara
sem þannig er ógnað til boða, en það
dregur ekki úr þakklæti mínu. Ég þurfti á
henni að halda, og hún var veitt. (Ég er
ennþá enginn íhaldsmaður, en svona er
lýðræðið.)
Ég er líka þakklátur varðmönnum mín-
um, sem hafa staðið sig svo frábærlega
vel, og hafa orðið vinir mínir.
Ég er þakklátur öllum sem hafa veitt
mér stuðning. Það hefur verið mikill feng-
ur að því á þessum erfiða tíma að upp-
götva að svo margt fólk lét sig um mig
varða. Eina mótefnið gegn hatri er kær-
leikur.
Umfram allt er ég þakklátur, hef samúð
með og er stoltur af öllum þeim útgáfu-
starfsmönnum og bóksölum út um allan
heim sem hafa staðist ógnanir, og munu,
er ég viss um, halda því áfram eins lengi
og nauðsyn krefur.
Mér finnst mér hafa verið varpað, eins
og Lísu, inn í veröldina handan spegils-
ins, þar sem eina vitið er vitleysa. Og ég
velti því fyrir mér hvort ég muni nokkurn
tíma geta klifrað til baka gegnum speg-
ilinn.
Harmaég eitthvað? Auðvitað: ég harma
það að verk mitt skyldi vekja slíka reiði
því að það var ekki ætlunin — þar sem
ætlunin var að vekja upp umræður, og
andóf, og jafnvel stundum beita háði, og
gagnrýna þröngsýni, en ekki það sem ég
hef aðallega verið ásakaður um, ekki
„óþverra", ekki „dónaskap“, ekki „níð“.
Ég harma það að svo margt fólk sem hefði
getað haft ánægju af því að fylgjast með
veruleika sínum gerð viðunandi skil í
skáldsögu skuli nú ekki lesa hana vegna
þess hvað það heldur að hún sé, eða nálg-
ast hana með hugann formyrkvaðan.
Og það hryggir mig að vera svo sárlega
einangraður frá samfélagi mínu, frá Ind-
landi, frá daglegu lífi, frá veröldinni.
En hafið samt hugfast: ég kvarta ekki.
Ég er rithöfundur. Ég sætti mig ekki við
aðstæðumar; ég mun leitast við að breyta
þeim; en ég bý við þær, ég er að reyna að
læra af þeim.
Svo lengi lærir sem lifir.
Greinin birtist í The Independent on Sunday 4.
febrúar 1990. Skýringar hér fyrir neðan eru eftir
þýðandann.
1. Þetta atvik byggir Rushdie á frásögn tveggja
arabískra ævisagnaritara Múhammeðs (al-Wa-
quidi, 747-823 e.Kr., og at-Tabari, 839-923 e.
Kr.) er síðari túlkendur Kóransins hafa hafnað.
2. Enoch Powell (f. 1912) er fyrrverandi þingmað-
ur og ráðherra breska íhaldsflokksins. Hann
var einn frægasti andstæðingur þess að opna
landið fyrir innflytjendum úr bresku samveld-
islöndunum.
3. í sagnaheimi gyðinga er gólem leirstytta sem
gædd hefur verið lífi með yfimáttúrlegum
hætti.
4. Skáldið Osip Mandelstam orti kvæðið um Stal-
ín árið 1934 og er talið að hann hafi látist í
fangabúðum í Síberíu fjórum árum síðar.
Kvæðið birtist í íslenskri þýðingu Geirs Kristj-
ánssonar í bók hans Undir hœlum dansara
(Reykjavík 1988).
5. Norman Tebbit er þingmaður Ihaldsflokksins
og fyrrverandi ráðherra.
6. Hér er vísað til listfræðibókar Bergers, Ways of
Seeing (London 1972).
Islensk þýðing: Arni Oskarsson
TMM 1990:2
19