Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Síða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Síða 64
runa efniviðarins: í Völuspá rekast heiðnar goðsagnir og heimspekilegar hugmyndir ekki á og í því birtist voldug og mótsetn- ingalaus heildarsýn yfir sögu goða og manna. í þessu samhengi er ljóst, að hugmyndin um neind og útfærsla hennar er eitt af þeim heimspekilegu atriðum sem skáldið gat ekki fundið í heiðinni goðafræði en hins vegar kynnst í útleggingum kristinnar sköp- unarsögu. Ef menn vilja fá sannanir fyrir því, er þeirra ekki mjög langt að leita. Ýms- um hefur orðið starsýnt á, að í hinni svo- nefndu Wessobrunner-bæn, sem er þýsk og frá 9. öld, kemur fyrir sama formúla og í þriðju vísu Völuspár, „jörð og upphiminn", og hafa menn talið að þar kynnu að vera tengsl á milli, en aðrir hafa hafnað því á þeim forsendum að þessi orð séu hvort sem er útbreidd formúla. En menn hafa ekki tekið eins vel eftir því, að þessi formúla er ekki það eina sem kvæðin eiga sameigin- legt: í Wessobrunner-bæninni er nefnilega einnig verið að skilgreina hugtakið neind með sams konar upptalningu á því sem ekki var og þriðja vísa Völuspár hefur að geyma. Munurinn er sá að upptalningin er heldur lengri og ekki eins markviss og í norræna kvæðinu, en orðin „jörð og upphiminn“ eru liður í henni á báðum stöðunum: ero ni was noh ufhimil, og eru þessar línur nánar því eins og fimmta og sjötta ljóðlínan í þriðju vísu Völuspár og hafa sama hlutverk. Loks má nefna að hug- takið neind er skýrt sett fram í upptalning- unni í báðum kvæðunum, en ekki á sama stað: „niwiht“ í lok hennar í Wessobrunner- bæninni og „ekki“ í upphafi hennar í Snorra-Eddu. Það er samt engin ástæða til að halda að Wessobrunner-bænin sé „fyrirmynd" þess- arar vísu Völuspár. Ólíklegt er að þýska skáldið hafi verið frumlegt á nokkum hátt, og innblástur þess var að minnsta kosti heldur stuttur: það notar þessa neikvæðu upptalningu einungis til að koma fram með þá hugmynd, að þegar ekkert var, hafi guð samt verið til og andarnir, og síðan kemur bæn. Það er því langsennilegast að bæði þýska skáldð og höfundur Völuspár séu að útfæra guðfræðilegan topos: það atriði að í báðum þessum germönsku útgáfum sömu hugmyndarinnar skuli koma fyrir orðin „jörð og upphiminn“ bendir til að skáldin hafi þekkt hann í nokkuð ítarlegri og skyldri útgáfu, þar sem merkingin var vitanlega skýrt dregin fram. En af þeim tveimur er það höfundur Völuspár sem útfærir þennan topos miklu betur og setur hann inn í sam- hengi þar sem hann segir miklu meira. Af þessum ástæðum öllum finnst mér í meira lagi ósennilegt að höfundur Völuspár skuli hafa ruglast svo mjög í þeirri hugsun sem hann var að setja fram að hann hafi leyft Ými að gerast boðflenna í heimspeki- ræðunni: það er hins vegar í samræmi við vinnubrögð hans yfirleitt að hann hafi verið búinn að hugsa sína hugmynd út í æsar og síðan kunnað að útfæra hana eftir því. í leiðinni hafi hann einfaldlega sleppt Ými með öllu til að forðast ósamræmi, enda kemur hann hvergi annars staðar fyrir í sköpunarsögu Völuspár (nema ef til vill í dvergatalinu, sem harla hæpið er að sé upp- runalegt í kvæðinu): hugsun kvæðisins er fullkomin án þess að hann komi þar nokkuð við sögu. En þá vaknar spurningin: hvers vegna fór maður sem var jafn vel að sér og sleipur í heimspekilegum og guðfræðileg- um bollaleggingum að semja heiðið goða- kvæði? Ljóst er orðið að til að velta þessu vanda- máli fyrir sér, svo og öðrum vandamálum í sambandi við Völuspá, stoðar harla lítið að ímynda sér einhverja sagnasöngvara sem hafi í sífellu verið að tvinna saman form- úlum með það efst í huga að áheyrendum 62 TMM 1990:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.